21.08.2013
Götusýningin 2013 opnuð
Yfir þúsund verk bárust frá um sex hundruð einstaklingum
Í gær fór fram formleg opnun Götusýningarinnar 2013 sem er stærsta listsýning landsins. Götusýningin er jafnframt sú fyrsta sem fram fer á götuskiltum höfuðborgarinnar og setja verkin skemmtilegan svip á höfuðborgarsvæðið meðan á sýningu stendur. Arion banki efnir til Götusýningarinnar í tilefni af Menningarnótt og mun sýningin standa yfir fram til 27. ágúst.
Nokkrir af þeim tæplega sex hundruð einstaklingum sem verk eiga á sýningunni opnuðu hana formlega með því að afhjúpa verk sín. Í þeirra hópi voru Jóna Sigurjónsdóttir, með verkið Kisa í góðu skapi, Ronja Bjarnadóttir, Týnda stelpan, Sigurður Sævar Magnúsarson, en verk hans er án titils, og Berglind Anna Einarsdóttir með verkið Sátt.
Í júlí sl. auglýsti Arion banki eftir því að listafólk á öllum aldri sendi inn á vef bankans mynd af einu verki eða fleirum vegna Götusýningarinnar 2013. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og bárust yfir þúsund verk sem um sex hundruð einstaklingar sendu inn. Verkin eru eins fjölbreytt og þau eru mörg, málverk, teikningar, ljósmyndir, grafísk hönnun og útsaumur.
Eitt verk var valið frá hverjum þátttakanda til að taka þátt í sýningunni en vegna mikils fjölda innsendra verka verða þau einnig til sýnis í útibúum Arion banka á höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að sjá sýninguna í heild sinni á vef bankans; arionbanki.is en þar verður jafnframt hægt að sjá hvar hvert verk er staðsett í borginni meðan sýningin stendur yfir.
Meðfylgjandi eru myndir frá opnun sýningarinnar.