24.05.2011
Golfsambandið og Arion banki semja um Arion banka mótaröð fyrir unglinga
Arion banki hefur ákveðið að styðja mótaröð Golfsambands Íslands fyrir unglinga og mun hún áfram bera heitið Arion banka mótaröðin.
Golfsamband Íslands og Arion banki hafa undanfarin ár átt farsælt samstarf og hefur Arion banki stutt golfíþróttina og hvatt til aukinnar þátttöku, sérstaklega meðal barna og unglinga. Á Arion banka mótaröðinni munu bestu kylfingar úr röðum ungs fólks etja kappi. Golfsamband Íslands hefur staðið fyrir víðtækri kynningu á golfíþróttinni og liður í því eru sjónvarpsþættir sem verða á dagskrá RÚV í sumar og þar verða m.a. fluttar fréttir af Arion banka mótaröðinni.
Í ár eru mótin tvö eins og áður þ.e.a.s Arion banka mótaröð unglinga þar sem okkar bestu kylfingar mætast. Einnig er keppt á Áskorendamótaröð Arion banka en þá mótaröð sækja þeir sem ekki komast á unglingaröðina sökum aldurs, forgjafar eða fjöldatakmarkana. Mótin verða sex og gilda þau öll til stiga á Arion banka listanum. Keppt er í sex flokkum, Piltaflokkur 17 – 18 ára, Stúlknaflokkur 17 – 18, Drengjaflokkur 15 – 16 ára, Telpnaflokkur 15 – 16 ára, Strákaflokkur 14 ára og yngri, Stelpuflokkur 14 ára og yngri.
Golfsambandið og Arion banki fagna þessu samstarfi og óska öllum keppendum góðs gengis í Arion banka mótaröðinni.
Hörður Þorsteinsson framkvæmdastjóri Golfsambandsins, Guðrún Brá Björgvinsdóttir kylfingur, Rún Pétursdóttir kylfingur, Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka