28.11.2008
Greiðslujöfnun vegna verðtryggðra fasteignalána
Frumvarp um breytingu á lögum um greiðslujöfnun verðtryggðra fasteingalána til einstaklinga var samþykkt á Alþingi á dögunum.
"Aðferðin við greiðslujöfnun felst í því að reiknuð verður ný vísitala, svonefnd greiðslujöfnunarvísitala, sem gefin verður út mánaðarlega. Í greiðslujöfnunarvísitölunni verður vegin saman launaþróun samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands og þróun atvinnustigs samkvæmt mælingum Vinnumálastofnunar. Ef afborganir samkvæmt þessari vísitölu reynast lægri en afborganir samkvæmt vísitölu neysluverðs, sem er grundvöllur verðtryggingar verðtryggðra lána, er þeim hluta af afborgunum fasteignalánsins sem nemur mismuninum frestað þar til greiðslujöfnunarvísitalan hækkar á ný umfram neysluvísitöluna. Sá hluti afborgana sem frestast er færður á sérstakan jöfnunarreikning sem bætist við höfuðstól lánsins. Þegar og ef afborganir af láninu, reiknað samkvæmt greiðslujöfnunarvísitölunni eru aftur á móti hærri en afborganir reiknað samkvæmt neysluvístölu greiðist mismunurinn inn á jöfnunarreikninginn til lækkunar höfuðstóls lánsins. Sé skuld á jöfnunarreikningi við lok upphaflegs lánstíma er lánstíminn lengdur."
Texti frá Félagsmálaráðuneytinu
Viðskiptavinir Kaupþings geta óskað eftir greiðslujöfnun á verðtryggðu fasteignaláni sér að kostnaðarlausu. Kaupþing leggur ríka áherslu á að þessi lausn hentar alls ekki öllum viðskiptavinum og telur mikilvægt að viðskiptavinir fari í gegnum aðstoð við greiðsluaðlögun til að velja úrræði sem við á.