12.09.2014
Grunsamlegir tenglar í tölvupósti - ekki smella!
Bankar og fjármálafyrirtæki biðja aldrei um upplýsingar um notendur í gegnum tölvupóst
Nokkuð hefur orðið vart við tölvupóst í vikunni þar sem viðskiptavinir banka eru beðnir um að smella á tengil inni í póstinum og gefa upp notendanafn og aðgangsorð að netbönkum.
Almenningur er hvattur til að vera á varðbergi gagnvart slíkum tölvupósti og smella ekki á slíka tengla. Bankar og fjármálafyrirtæki biðja viðskiptavini sína aldrei um notendaupplýsingar í gegnum tölvupóst, né hvetja þá með þeim hætti til að skrá sig inn í heimabanka.
Gott er að senda grunsamlega tölvupósta áfram til viðkomandi banka til upplýsingar fyrir starfsfólk hans og eyða síðan viðkomandi skeyti tafarlaust.
Ennfremur er fólk hvatt til að fara ekki í netbanka nema í gegnum vefsíður viðkomandi banka eða fjármálafyrirtækis.
Þeir sem hugsanlega hafa smellt á hlekk úr tölvupósti eins og þann sem lýst er hér að ofan eru hvattir til að skipta um lykilorð í netbankanum og kynna sér upplýsingar um öryggi netbankans á heimasíðu viðkomandi banka.
Ítrekað skal að viðskiptavinum bankanna er eftir sem áður óhætt að tengjast netbankanum sínum með venjulegum hætti í gegnum vefsíðu viðkomandi banka.
Eftirfarandi er gott að hafa í huga fyrir þá viðskiptavini sem nota netbanka:
Notendur eiga aldrei að smella á grunsamlega tengla í tölvupósti. Gott er að hafa það fyrir reglu að tengjast netbanka eingöngu í gegnum heimasíðu viðkomandi banka. Þetta skal einnig hafa í huga þegar um viðkvæmar upplýsingar eða viðskipti af öðru tagi er að ræða.
Bankar senda aldrei viðskiptavinum sínum tölvupóst þar sem notendur eru beðnir um að uppfæra upplýsingar um sig með því að smella á hlekk í skeytinu eða senda upplýsingar með því að svara póstinum. Þetta á t.d. við um notendanafn, lykilorð eða greiðslukortaupplýsingar.
Þegar farið er inn í netbanka ber að gæta þess að slóðin í vafra sé á öruggu vefsvæði, það sést með því að ganga úr skugga um að https:// sé fremst í vefslóð.