18.10.2010

Hag­ar boðnir til sölu

Formlegt söluferli að hefjast á hlut Arion banka í Högum

Leitað að fjárfesti að kjölfestuhlut í Högum til að veita félaginu forystu til lengri tíma. Stefnt að því að bjóða fagfjárfestum og almennum fjárfestum að kaupa hlutabréf í Högum og skrá félagið í íslensku kauphöllinni.

Arion banki er nú að hefja formlegt söluferli á eignarhlut sínum í verslunarfyrirtækinu Högum, sem nemur um 99,5% af útistandandi hlutum í félaginu. Fyrsta skref bankans verður að bjóða til sölu kjölfestuhlut í því skyni að fá til liðs við félagið fjárfesti sem veita mun félaginu forystu til lengri tíma. Að lokinni sölu á kjölfestuhlut í Högum verður fagfjárfestum og almennum fjárfestum gefið færi á að kaupa hluti í félaginu, og í kjölfarið er áformað að skrá hlutabréf félagsins í íslensku kauphöllinni.

Arion banki áformar að selja kjölfestufjárfesti 15-29% hlut í Högum. Bankinn mun þó taka til skoðunar öll tilboð sem bankanum berast í eignarhlut sinn í félaginu. Er því fjárfestum, sem áhuga hafa á að kaupa allan hlutinn, gefinn kostur á því að leggja inn slíkt tilboð nú á fyrsta stigi söluferlisins.

Nánara fyrirkomulag þessa fyrsta hluta söluferlisins verður auglýst í lok vikunnar.

Það er Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka sem hefur umsjón með söluferlinu og skráningu Haga, sem er fyrirhuguð á næsta ári, en í þessu ferli nýtur bankinn einnig ráðgjafar Markaðsviðskipta Svenska Handelsbanken.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Það er ákveðinn liður í endurreisn íslensks viðskiptalífs að koma eignarhaldi Haga frá bankanum og í eðlilegri farveg, enda um að ræða stærsta verslunarfyrirtæki landsins sem gegnir mikilvægu hlutverki í smásöluverslun um allt land. Hagar eru öflugt félag sem hefur sýnt stöðugan rekstur í erfiðu efnahagsumhverfi og efnahagur þess er traustur. Við teljum því að Hagar séu áhugaverður kostur fyrir fjárfesta.“

Arion banki eignaðist hlut sinn í Högum við yfirtöku á eignarhaldsfélaginu 1998 í október 2009. Þegar hefur verslanakeðjan 10-11 verið skilin frá rekstri Hagasamstæðunnar og er sala hennar í undirbúningi. Einnig hefur verið samið um sölu á eignarhlut Haga í SMS sem rekur matvöruverslanir í Færeyjum.

Á fjárhagsárinu 2009/10 veltu Hagar um 65 milljörðum króna og nam rekstrarhagnaður (EBITDA) um fjórum milljörðum króna, en þá er búið að taka tillit til breytinga á samstæðunni. Undir samstæðu Haga falla verslanakeðjurnar Bónus og Hagkaup, Útilíf, verslanir á Íslandi undir vörumerkjunum All Saints, Coast, Day, Debenhams, Dorothy Perkins, Evans, Karen Millen, Oasis, Top Shop, Warehouse og Zara, ásamt innkaupafyrirtækjunum Aðföngum, Hýsingu, Banönum og Ferskum kjötvörum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira