28.11.2011

Hag­ar hf. - Birt­ing lýsingar

Hagar hf. birta í dag lýsingu í tengslum við almennt útboð á hlutum félagsins og ósk stjórnar félagsins um að hlutir í Högum hf. verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Lýsingin er dagsett 26. nóvember 2011, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu félagsins, www.hagar.is.

Lýsinguna má nálgast hjá félaginu næstu 12 mánuði, en hún er gefin út rafrænt á vefsíðu félagsins. Lýsinguna má einnig nálgast á vefsíðu umsjónaraðila, www.arionbanki.is. Frá 30. nóvember 2011 má jafnframt nálgast innbundin eintök hjá Högum hf. í Hagasmára 1, 201 Kópavogi og hjá Arion banka hf. í Borgartúni 19, 105 Reykjavík.

Heildarfjöldi útgefinna hluta í Högum hf. nemur 1.217.585.840, en þar af á félagið 3,8% eigin hluta. Allir hlutir félagsins eru í sama flokki og jafn réttháir. Hlutir félagsins eru gefnir út rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf. og er hver hlutur 1 króna að nafnverði. Auðkenni hlutabréfanna hjá Verðbréfaskráningu er HAGA og ISIN númer hlutabréfanna er IS0000020121. Stjórn útgefanda hefur óskað eftir því að HAGA verði auðkenni hlutabréfanna í kerfum Kauphallarinnar.

Almennt útboð 5.-8. desember 2011

Eignabjarg ehf., dótturfélag Arion banka hf., hyggst selja þegar útgefna hluti í Högum hf. með almennu útboði. Stærð útboðsins nemur 20% af útgefnum hlutum, eða 243.517.168 hlutum, en stjórn seljanda áskilur sér rétt til að stækka útboðið í allt að 30% af útgefnum hlutum eða samtals í allt að 365.275.752 hluti. Tekið verður við áskriftum frá og með mánudeginum 5. desember 2011 klukkan 10.00 til og með fimmtudeginum 8. desember 2011 klukkan 16.00. Lágmarksáskrift er að andvirði 100 þúsund krónur og hámarksáskrift að andvirði 500 milljónir króna. Stjórn seljanda óskar eftir áskriftum á verðbilinu 11–13,5 krónur á hlut og mun eftir lok áskriftartímabils ákvarða eitt endanlegt útboðsgengi til allra kaupenda í útboðinu, en það mun verða á framangreindu verðbili.

Markmið Eignabjargs ehf. er að útboðið geri Högum hf. kleift að uppfylla skilyrði NASDAQ OMX Iceland hf. um dreifingu hlutafjár og marki þannig grunninn að dreifðu eignarhaldi á Högum hf., en þá er bæði horft til þess að almenningur og fagfjárfestar eignist hlut í félaginu, og jafnframt er markmið seljandans að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína. Stjórn seljanda mun falla frá útboðinu ef ekki fæst áskrift í útboðinu fyrir að lágmarki 20% af útgefnum hlutum í Högum hf. eða ef NASDAQ OMX Iceland hf. samþykkir ekki í desember 2011 fyrirliggjandi umsókn útgefanda um að hlutir í Högum hf. verði teknir til viðskipta. Stjórn seljanda áskilur sér jafnframt rétt til að falla frá útboðinu hvenær sem er fram að tilkynningu NASDAQ OMX Iceland hf. um að hlutir í Högum hf. verði teknir til viðskipta ef upp koma einhverjir þeir áhrifaþættir sem stjórn seljandans telur gefa tilefni til þess, svo sem sérlega neikvæð þróun á efnahagsumhverfi og verðbréfamarkaði á Íslandi.

Niðurstöður útboðs munu liggja fyrir að morgni 9. desember 2011. Að því gefnu að lágmarksskilyrði Kauphallarinnar um hlutafjárdreifingu verði uppfyllt með útboðinu og Kauphöllin hafi áður samþykkt umsókn Haga með fyrirvara um hlutafjárdreifingu, þá mun Kauphöllin taka hluti í Högum til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. í kjölfar útboðsins. Gert er ráð fyrir að 15. desember 2011 verði fyrsti dagur viðskipta með hluti félagsins í Kauphöllinni, en hann verður tilkynntur af Kauphöllinni með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um Haga hf. og skilmála almenna útboðsins má finna í lýsingu Haga hf.
Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með almenna útboðinu og því ferli að fá hluti félagsins tekna til viðskipta í Kauphöllinni.

Fyrirvari vegna birtingar lýsingar dagsettri 26. nóvember 2011

Lýsingin, dagsett 26. nóvember 2011, sem finna má á þessari síðu, varðar almennt útboð á hlutum í Högum hf. og töku allra útgefinna hluta í Högum hf. til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Hvorutveggja fer fram í samræmi við íslensk lög og reglugerðir, þar á meðal lög nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Tilskipun Evrópuþingsins og -ráðsins 2003/71/EC frá 4. nóvember 2003 hefur verið innleidd í íslenskan rétt.Lýsingin er útbúin með hliðsjón af núgildandi löggjöf á Íslandi, svo og reglum NASDAQ OMX Iceland hf. sem gilda um töku verðbréfa til viðskipta. Lýsingin hefur verið yfirfarin og staðfest af NASDAQ OMX Iceland hf. í samræmi við samning við Fjármálaeftirlitið.

Útboðið stendur yfir frá kl. 10.00 þann 5. desember 2011 til kl. 16.00 þann 8. desember 2011. Tilboðshafar útboðsins eru þeir fjárfestar sem heimiluð er þátttaka í útboðinu samkvæmt lýsingunni, en þeir eru aðilar (einstaklingar og lögaðila) með íslenska kenntölu sem eru fjárráða og ráða búi sínu sjálfir. Það þýðir m.a. að einstaklingum og félögum sem tekin hafa verið til gjaldþrotaskipta er ekki heimiluð þátttaka í útboðinu og að einstaklingum undir 18 ára aldri er ekki heimiluð þátttaka í útboðinu. Hlutirnir eru einungis boðnir til sölu á Íslandi og eru ekki boðnir til sölu í lögsagnarumdæmum þar sem slíkt útboð myndi krefjast aukinnar skráningar umfram þá lýsingu sem gefin er út og staðfest af íslenskum eftirlitsaðilum í tengslum við útboðið.

Lýsingin er gefin út í á íslensku, bæði á rafrænu og prentuðu formi. Lýsingin samanstendur af þremur sjálfstæðum skjölum; samantekt, verðbréfalýsingu og útgefandalýsingu og skal skoðast sem ein heild Lýsingunni má ekki breyta né hluta niður á neinn hátt. Óheimil er hverslags dreifing lýsingarinnar til landa þar sem dreifing myndi krefjast viðbótar skráningarferlis eða aðgerða annarra en þeirra sem heyra undir íslensk lög og reglur, eða sem greinir á við lög eða reglur viðeigandi landa. Lýsingunni skal hvorki dreifa eða senda í pósti né dreifa á einn eða annan hátt til eða innan Bandaríkjanna, Ástralíu, Kanada eða Japan.

Lýsinguna má undir engum kringumstæðum skoða eða túlka sem loforð um árangur í rekstri eða um ávöxtun fjármuna af hálfu útgefanda, umsjónaraðila eða annarra aðila. Hver sá sem hyggst taka þátt í útboðinu á hlutum í Högum hf. er hvattur til að kynna sér lýsinguna ítarlega.

Fyrirvari þessi er gerður í samræmi 2. tl .29. gr. reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins 809/2004 frá 29. apríl 2004.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira