09.12.2011

Hag­ar hf. - Birt­ing við­auka við lýsingu

Hagar hf. birta í dag viðauka við lýsingu dagsetta 26. nóvember 2011 sem gefin var út í tengslum við almennt útboð á hlutum félagsins og ósk stjórnar félagsins um að hlutir í Högum hf. verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Viðaukinn er dagsettur 9. desember 2011, gefinn út á íslensku og birtur á vefsíðu félagsins, www.hagar.is.

Viðaukinn er gefinn út á grundvelli 46. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 þar sem kemur fram að komi fram mikilvægar nýjar upplýsinga sem máli geta skipt við mat á verðbréfunum skuli útbúa viðauka við lýsingu þar sem greint er frá viðkomandi atriðum. Viðaukinn skoðast sem hluti af lýsingunni sem má nálgast hjá félaginu næstu 12 mánuði, og er gefinn út rafrænt á vefsíðu félagsins. Lýsinguna ásamt viðauka má einnig nálgast á vefsíðu umsjónaraðila, www.arionbanki.is. en jafnframt nálgast innbundin eintök af lýsingunni ásamt viðauka hjá Högum hf. í Hagasmára 1, 201 Kópavogi og hjá Arion banka hf. í Borgartúni 19, 105 Reykjavík.

Upplýsingar í viðauka

Í viðaukanum eru upplýsingar um bætta fjárhagsstöðu Haga hf., sem nemur ríflega 510 milljónum króna, í kjölfar endurútreiknings Arion banka hf. á gengistryggðum lánum félagsins sem er til kominn vegna fordæmis Hæstaréttar í máli nr. 155/2011 (Landsbankinn hf. gegn þrotabúi Motormax ehf.), en upplýsingarnar taka til kafla 7.3 Breytingar frá síðasta birta uppgjöri sem er að finna í útgefandalýsingu Haga hf. dagsettri 26. nóvember 2011 sem er hluti af lýsingunni.

Í viðaukanum eru einnig upplýsingar um útboðið uppfærðar með hliðsjón af niðurstöðu útboðsins og birtingu þessa viðauka og skoðast sem uppfærsla á kafla 3. Almennt útboð sem er að finna í verðbréfalýsingu Haga hf. dagsettri 26. nóvember 2011 sem er hluti af lýsingunni.

Fjárfestum er bent á að fyrir miðnætti í lok dags 13. desember 2011 hafa þeir rétt til að falla frá áskrift sinni í útboðinu, að eindagi kaupverðs hefur verið ákveðinn 15. desember 2011 og að fyrsti dagur viðskipta með hluti félagsins í Kauphöllinni getur í fyrsta lagi orðið næsta viðskiptadag eftir eindaga kaupverðs.

Nánari upplýsingar má nálgast hjá Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Arion banka hf. í síma 444 7000 eða með því að senda tölvupóst á HagarIPO2011@arionbanki.is.

Hagar hf. - viðauki við lýsingu.pdf

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira