01.12.2011
Hagar hf. - kynning
Í aðdraganda almenns útboðs á hlutum í Högum hf. hefur Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. ásamt Finni Árnasyni forstjóra félagsins kynnt félagið fyrir fjárfestum, en kynninguna má finna hér að neðan ásamt tilkynningu um birtingu lýsingar Haga hf. Kynningin inniheldur pro forma tölur úr rekstrar- og efnahagsreikningi félagsins ásamt samtölum úr sjóðstreymisyfirliti.
Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér efni lýsingarinnar í heild sinni og byggja mat sitt á félaginu á þeim upplýsingum sem þar koma fram en ekki byggja mat sitt á þeirri stuttu samantekt sem kynningin er. Fjárfesting í hlutabréfum felur í sér margvíslega áhættuþætti. Áður en tekin er ákvörðun um fjárfestingu í hlutabréfum Haga ættu fjárfestar að kynna sér allar upplýsingar sem koma fram í útgefandalýsingu, verðbréfalýsingu og samantekt dagsettum 26. nóvember 2011, sérstaklega er bent á kafla sem bera heitið Áhættuþættir. Þeir óvissu- og áhættuþættir sem fjallað er um þar eru þess eðlis að þeir geta haft áhrif á útgefanda og þar með á verð á hlutum í útgefanda. Komi fram einhver af þessum áhættuþáttum kann það að leiða til þess að verð á hlutum í útgefanda falli og fjárfestar tapi hluta af fjárfestingu sinni eða jafnvel allri fjárfestingunni. Aðrir áhættu- og óvissuþættir gætu einnig haft neikvæð áhrif á starfsemi félagsins og/eða verðmæti verðbréfa sem Hagar gefa út, til að mynda þættir sem ekki eru til staðar á þessari stundu, eða sem ekki eru taldir skipta verulegu máli eins og er, eða sem Högum er ekki kunnugt um.
Almennt útboð á hlutum í Högum hf. stendur yfir frá kl. 10.00 þann 5. desember 2011 til kl. 16.00 þann 8. desember 2011. Tilboðshafar útboðsins eru þeir fjárfestar sem heimiluð er þátttaka í útboðinu samkvæmt lýsingunni, en þeir eru aðilar (einstaklingar og lögaðila) með íslenska kenntölu sem eru fjárráða og ráða búi sínu sjálfir. Það þýðir m.a. að einstaklingum og félögum sem tekin hafa verið til gjaldþrotaskipta er ekki heimiluð þátttaka í útboðinu og að einstaklingum undir 18 ára aldri er ekki heimiluð þátttaka í útboðinu.
Hlutirnir eru einungis boðnir til sölu á Íslandi og eru ekki boðnir til sölu í lögsagnarumdæmum þar sem slíkt útboð myndi krefjast aukinnar skráningar umfram þá lýsingu sem gefin er út og staðfest af íslenskum eftirlitsaðilum í tengslum við útboðið.
Lýsingin er gefin út í á íslensku, bæði á rafrænu og prentuðu formi. Lýsinguna skal skoðast sem ein heild. Lýsingunni má ekki breyta né hluta niður á neinn hátt. Óheimil er hverslags dreifing lýsingarinnar til landa þar sem dreifing myndi krefjast viðbótar skráningarferlis eða aðgerða annarra en þeirra sem heyra undir íslensk lög og reglur, eða sem greinir á við lög eða reglur viðeigandi landa. Lýsingunni skal hvorki dreifa eða senda í pósti né dreifa á einn eða annan hátt til eða innan Bandaríkjanna, Ástralíu, Kanada eða Japan.
Lýsinguna má undir engum kringumstæðum skoða eða túlka sem loforð um árangur í rekstri eða um ávöxtun fjármuna af hálfu útgefanda, umsjónaraðila eða annarra aðila. Hver sá sem hyggst taka þátt í útboðinu á hlutum í Högum hf. er hvattur til að kynna sér lýsinguna ítarlega.