21.10.2008
Hagnýtar upplýsingar um lífeyrissparnað hjá Kaupþingi vegna atburða síðustu daga
Aðskilinn rekstur Kaupþings og lífeyrissparnaðar hjá Kaupþingi
Í ljósi þess að Fjármálaeftirlitið hefur tekið yfir rekstur Kaupþings er rétt að taka fram að inneign sjóðfélaga í lífeyrisafurðum Kaupþings er aðskilin eignum bankans og ekki er hægt að ráðstafa henni upp í skuldbindingar bankans. Þetta þýðir að eignir sjóðanna eru eignir sjóðfélaga en ekki bankans.
Sjóðfélagar hvattir til að greiða áfram iðgjöld
Sjóðfélagar þurfa ekki að óttast að iðgjöld sem hafa verið greidd frá og með 6. október sl. og iðgjöld sem berast sjóðnum framvegis tapist eða lækki í verði vegna væntanlegs gengisfalls verðbréfa Glitnis, Landsbankans og Kaupþings. Á meðan viðskipti á verðbréfamörkuðum eru takmörkuð þá fara framangreind iðgjöld tímabundið inn á innlánsreikninga innan þeirra fjárfestingarleiða sem sjóðfélagar hafa valið.
Allir sjóðfélagar eru hvattir til þess að halda áfram að leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnaði hafi þeir svigrúm til þess og njóta þar með 2% mótframlags launagreiðanda skv. kjarasamningi. Einnig er mögulegt að lækka framlagið úr 4% í 2% af launum og fá áfram mótframlags launagreiðanda.
Frestun á gengisútreikningi og flutningsbeiðnum
Vegna óvissu um verðlagningu undirliggjandi eigna sjóðanna, er hvorki hægt að reikna gengi þeirra - annarra en Lífeyrisauka 5 og Vista 5 - né verða við beiðnum um flutning á inneign. Þetta er tímabundið ástand og vonast er til að úr rætist innan skamms. Þrátt fyrir þetta er tekið við beiðnum um breytingu á fjárfestingarleið.
Lækkun á gjaldi vegna flutnings á lífeyrissparnaði
Kaupþing og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa ákveðið að lækka gjald vegna flutnings á inneign sjóðfélaga í lífeyrissparnaði á milli fjárfestingarleiða innan sama sjóðs og einnig milli sjóða sem bankinn rekur.
Ekkert gjald hefur verið tekið vegna fyrsta flutnings inneignar, innan almanaksárs, úr einni fjárfestingarleið yfir í aðra, ef flutningurinn er innan sama sjóðs. Nú hefur verið ákveðið að allir flutningar með fyrrgreindum hætti og innan nefnds tíma, verði gjaldfrjálsir. Einnig hefur verið ákveðið að lækka kostnað vegna flutnings milli sjóða sem bankinn rekur, úr 1% í 0,25% af fluttri inneign.
Sjóðfélagar geta flutt inneign milli fjárfestingarleiða og/eða greitt iðgjöld í aðra fjárfestingarleið. Fjölbreyttar fjárfestingarleiðir með mismunandi fjárfestingarstefnu eru í boði. Sjóðfélagar sem kjósa að minnka áhættu geta óskað eftir flutningi á inneign í verðtryggð innlán í Lífeyrisauka 5 eða Vista 5, sem ríkið hefur ábyrgst.
Greiðslur úr séreignarsjóði og samtryggingarsjóði verða inntar af hendi
Greiðslur úr samtryggingardeild og séreignardeild Frjálsa lífeyrissjóðsins og öðrum séreignarsjóðum í rekstri Kaupþings verða með hefðbundnum hætti um næstu mánaðamót. Þeir sem hafa óskað eftir greiðslu á allri séreign sinni munu fá a.m.k. 50% af henni og afganginn þegar gengi fjárfestingarleiðanna liggur fyrir. Þetta á ekki við um greiðslur úr Lífeyrisauka 5 og Vista 5.
Áhætta minnkuð
Eignastýring Kaupþings hefur á þessu ári kerfisbundið minnkað áhættu í fjárfestingarleiðum lífeyrisafurða Kaupþings. Áhættumeiri verðbréf hafa verið seld og í staðinn hafa m.a. verið keypt verðtryggð ríkisskuldabréf. Aðgerðirnar leiða til þess að lækkun á ávöxtun fjárfestingarleiðanna, vegna væntanlegs gengisfalls verðbréfa Glitnis, Kaupþings og Landsbankans, verður minni en ella.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn
Í fréttatilkynningu Landssamtaka lífeyrissjóða frá 7. október kemur fram að allt bendi til þess að grípa þurfi til skerðingar á lífeyrisréttindum á fyrri hluta árs 2009. Frjálsi lífeyrissjóðurinn vill taka fram að samkvæmt bráðabirgðaútreikningum verður að teljast ólíklegt m.v. núverandi stöðu að tryggingadeild sjóðsins þurfi að grípa til skerðingar á réttindum og lífeyri sjóðfélaga á næsta ári vegna áætlaðrar lækkunar á ávöxtun.
Áætluð lækkun á ávöxtun fjárfestingarleiða Frjálsa lífeyrissjóðsins vegna gengisfalls hlutabréfa viðskiptabankanna þriggja og stærð leiðanna 3. október sl. er um 0-4%, mismunandi eftir fjárfestingarleiðum. Ekki liggur ljóst fyrir hvort eða hve mikið af skuldabréfum bankanna í eigu sjóðsins tapast en unnið er hörðum höndum að því að gæta hagsmuna sjóðsins.
Lífeyrisauki og Vista
Áætluð lækkun á ávöxtun fjárfestingarleiða Lífeyrisauka 1-4/Vista 1-4 vegna væntanlegs gengisfalls hlutabréfa viðskiptabankanna þriggja og stærð leiðanna 3. október sl. er um 1-6%, mismunandi eftir fjárfestingarleiðum. Ekki liggur ljóst fyrir hvort eða hve mikið af skuldabréfum bankanna í eigu sjóðanna tapast en unnið er hörðum höndum að því að gæta hagsmuna sjóðanna. Ávöxtun Lífeyrisauka 5/Vista 5 lækkar ekki.