22.10.2014

Hag­ræðingar­aðgerð­ir hjá Arion banka

Arion banki hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á hagræðingu í rekstri bankans. Mikilvægt er að bæta afkomu reglulegrar starfsemi, meðal annars með því að draga úr kostnaði og styrkja þannig samkeppnishæfni bankans til framtíðar.

Í hagræðingarskyni hefur Arion banki á undanförnum árum meðal annars lokað 16 útibúum og afgreiðslum víðsvegar um landið og hefur starfsfólki bankans fækkað um 120 frá árslokum 2009 þrátt fyrir að starfsemi Verdis, Sparisjóðs Ólafsfjarðar og Dróma hafi færst til bankans. Hefur fækkun starfsfólks náðst fram að miklu leyti í gegnum hefðbundna starfsmannaveltu með þeim hætti að ekki hefur verið ráðið aftur í störf sem losna.

Í dag var ráðist í frekari hagræðingaraðgerðir innan Arion banka þegar 18 starfsmönnum var sagt upp störfum. Það er erfitt skref að þurfa að grípa til uppsagna en nauðsynlegt til að auka skilvirkni og hagkvæmni í grunnrekstri bankans. Að auki verður afgreiðslu Arion banka á Hólmavík lokað en við það munu tveir starfsmenn til viðbótar láta af störfum.

Eftir lokun afgreiðslunnar á Hólmavík starfrækir Arion banki 23 útibú og afgreiðslur um land allt. Viðskiptavinir afgreiðslunnar á Hólmavík geta sótt þjónustu í útibú bankans í Borgarnesi eða hvert það útibú bankans sem þeir kjósa, en um helmingur viðskiptavina afgreiðslunnar á Hólmavík er með búsetu á höfuðborgarsvæðinu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira