19.02.2014

Hagspá greining­ar­deild­ar kom út í morg­un

Greiningardeild stóð fyrir morgunfundi um horfur í efnahagslífinu í dag. Aðalefni fundarins var ný hagspá deildarinnar undir yfirskriftinni „Komin upp úr hjólförunum“. Í spánni er gert ráð fyrir tiltölulega kröftugum hagvexti á komandi árum, þótt ýmsar áskoranir bíði vissulega íslenska hagkerfisins.

Regína Bjarnadóttir er forstöðumaður greiningardeildar.

„Það kveður heldur betur við annan tón í hagspánni okkar núna heldur en í fyrra, en þá vorum við föst í fyrsta gír og ákveðin lágdeyða í hagkerfinu. Nú erum við komin upp úr hjólförunum og við erum þokkalega bjartsýn að útlitið framundan sé ágætt. Hagvöxtur er að taka við sér, drifinn áfram af bæði einkaneyslu og fjárfestingu, en ýmis jákvæð teikn eru um aukna fjárfestingu framundan t.d. er mikið verið að byggja af fasteignum og hótelum. Ferðaþjónustan er annar jákvæður drifkraftur á næstu árum en gífurleg aukning hefur orðið á komum ferðamanna undanfarin ár og við teljum að það sé töluvert svigrúm, sérstaklega yfir vetrarmánuðina, fyrir áframhaldandi fjölgun ferðamanna til landsins. Annað sem er jákvætt er stöðugt gengi krónunnar, en stöðugt gengi styður við lága verðbólgu fram á við. Við erum hóflega bjartsýn að verðbólguþrýstingur á komandi árum verði minni en við eigum að venjast en gerum þó ráð fyrir að verðbólgan haldist yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. En forsenda spár okkar byggist á því að almennir kjarasamningar verði í takt við þá sem undirritaðir voru í upphafi árs. Ef það gengur ekki eftir mun það vissulega valda enn meiri verðbólgu og gæti leitt til frekari vaxtahækkana Seðlabankans. Eitt af stóru vandamálunum eru höftin sem við búum við og til þess að ná fram hagsæld til lengri tíma litið liggur á að skapa aðstæður til þess að geta lyft höftunum.“

Á fundinum var jafnframt fjallað um peningamál landsins, gengi krónunnar og afnám hafta, auk þess sem kynnt var ný greining á eftirspurn og framboði fjárfestingarkosta í hagkerfinu.

Hér fyrir neðan má sjá glærur sem fyrirlesarar studdust við.

Hagspá 2014-2016 - Regína Bjarnadóttir, forstöðumaður greiningardeildar
Nýju fötin krónunnar - Hafsteinn Hauksson, hagfræðingur í greiningardeild
Hvert fara krónurnar? - Hrafn Steinarsson, hagfræðingur í greiningardeild

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira