04.05.2011
Haraldshádegi í Arion banka
Haraldur Sigurðsson, prófessor, eldjallafræðingur og forstöðumaður Eldfjallasafns í Stykkishólmi fjallar um viðskipti og vísindi, fimmtudaginn 5. maí kl. 12.15 - 13.00 í fyrirlestrasal Arion banka Borgartúni 19.
Haraldur mun fjalla um áhrif eldgosa á viðskipti, þar á meðal um gosið í Eyjafjallajökli og hugsanleg áhrif Kötlugoss.
Nýlega kom út bókin "Eldur niðri" sem fjallar um ævi og störf Haralds. Verk í eigu Eldjallasafns í Stykkishólmi verða til sýnis.
Allir velkomnir.