07.04.2011
Harðarhádegi í Arion banka
Svonefnt Harðarhádegi verður haldið laugardaginn 9. apríl kl. 13.30 - 14.30 í fyrirlestrasal Arion banka Borgartúni 19.
Pétur Ármannsson arkitekt og Ólafur Gíslason listfræðingur munu fjalla um Hörð Ágústsson (1922-2005), list hans og feril. Auk þess verða verk eftir Hörð Ágústsson, í einkaeign, til sýnis.
Sýningin verður opin alla virka daga kl. 11.00 - 15.30 og á laugardögum kl. 12.00 - 17.00 í apríl.
Laugardagur til lista. Allir velkomnir.