04.04.2014

HB Grandi: Al­mennt út­boð 7.-10. apríl

Almennt útboð á hlutum í HB Granda hf. hefst kl. 16:00 mánudaginn 7. apríl og lýkur kl. 16:00 fimmtudaginn 10. apríl og hefur fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. umsjón með útboðinu. Í útboðinu hyggjast Arion banki, Vogun hf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. selja 27–32% hlut í HB Granda. Markmið seljenda með útboðinu er annars vegar að það geri HB Granda kleift að uppfylla skilyrði NASDAQ OMX Iceland hf. um dreifingu hlutabréfa sem tekin eru til viðskipta á Aðalmarkaði kauphallarinnar og hins vegar horfa seljendur til þess að selja eign sína á sem hagstæðustu verði.

Tvær áskriftarleiðir eru í boði með mismunandi fjárhæðarmörkum og verðmyndun.

Tilboðsbók A

  • 8,5% eignarhluti boðinn til sölu

  • Áskrift að andvirði 100.000–25.000.000 kr.

  • Verðbil áskrifta 26,6–32,5 kr./hlut

  • Heildarsöluandvirði 4,1–5,0 milljarðar kr.

  • Öllum hlutum úthlutað á sama verði, sem verður jafnt eða lægra en í tilboðsbók B

Tilboðsbók B

  • 18,5% eignarhluti boðinn til sölu

  • Áskrift að andvirði frá 15.000.000 kr. og að hámarki 5% eignarhlutur

  • Lágmarksverð áskrifta 26,6 kr./hlut

  • Heildarsöluandvirði að lágmarki 9,0 milljarðar kr.

  • Öllum hlutum úthlutað á sama verði, sem verður jafnt eða hærra en í tilboðsbók A

Seljendur hafa rétt til að fjölga boðnum hlutum til sölu í allt að 32% eða um 5% af útgefnum hlutum. Ákvörðun um endanlega stærð útboðsins og skiptingu þess milli tilboðsbóka mun taka mið af eftirspurn í útboðinu, bæði hvað varðar verð og magn.

Áskrift er skilað rafrænt á áskriftarvef á arionbanki.is.

Aðgangur að áskriftarvef fæst með:
• aðgangsauðkennum fjárfestis að netbanka Arion banka, eða
• lykilorði sem óskað er eftir á arionbanki.is og sent er í heimabanka, eða
• lykilorði sem nálgast má hjá umsjónaraðila gegn undirritun vottaðrar umsóknar um lykilorð.

Áskriftir verða skertar komi til þess að eftirspurn verði umfram þann fjölda hluta sem boðnir eru til sölu.

Í tilboðsbók A er meginreglan sú að áskriftir yfir 500.000 kr. verða skertar um allt að 75% af upphaflegri áskrift. Þurfi að koma til frekari niðurskurðar verður hámark allra áskrifta fært enn neðar með flötum niðurskurði. Hámarksúthlutun getur því orðið lægri en 500.000 kr.
Í tilboðsbók B er meginreglan sú að meta áskriftir á grundvelli verðs.

Þátttaka í útboðinu er heimil aðilum með íslenska kenntölu sem eru fjárráða og ráða búi sínu sjálfir og með þeim takmörkunum sem kunna að leiða af lögum. Athygli er vakin á að ákvæði laga nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri koma í veg fyrir að erlendum aðilum, samkvæmt 1. gr. laga nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, sé heimil þátttaka í útboðinu.

Eindagi kaupverðs er áætlaður 23. apríl 2014. Stefnt er að því að fyrsti dagur viðskipta með hluti í HB Granda á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. verði 25. apríl 2014.

Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um HB Granda og skilmála útboðsins sem er að finna í lýsingu félagsins dagsettri 27. mars 2014 sem gefin er út á íslensku. Fjárfestum er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti.

Lýsinguna má nálgast rafrænt á hbgrandi.is og arionbanki.is. Hana má einnig nálgast innbundna í höfuðstöðvum HB Granda að Norðurgarði 1 í Reykjavík og hjá Arion banka í Borgartúni 19 í Reykjavík.

Lýsing og áskriftarvefur

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira