12.11.2013

HB Grandi hf. stefnir á Aðal­markað

HB Grandi hf. og stærstu eigendur félagsins, Vogun hf., Arion banki hf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus hf., hafa náð samkomulagi um að hefja undirbúning að því að hlutir félagsins verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland hf. Viðskipti með hluti félagsins eru nú á First North markaðstorgi Nasdaq OMX Iceland hf. og hyggjast aðilar leitast eftir afskráningu af þeim vettvangi sem taki gildi frá og með ársbyrjun 2014. Undirbúningur að skráningu á Aðalmarkað Nasdaq OMX Iceland hf. mun hefjast innan skamms og mun fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. annast undirbúninginn.

Áður en til skráningar á Aðalmarkað kemur hyggjast framangreindir hluthafar bjóða til sölu allt að 32% eignarhlut í HB Granda hf. Markmið sölunnar verður að stuðla að dreifðara eignarhaldi á félaginu og auka seljanleika hlutabréfa þess en viðskipti með hluti félagsins á First North hafa verið takmörkuð. Vonir standa til þess að viðskipti með hluti félagsins á Aðalmarkaði hefjist á vormánuðum næsta árs.

Kristján Loftsson, stjórnarformaður HB Granda hf.
„HB Grandi er eitt af öflugustu sjávarútvegsfélögum landsins með um 800 starfsmenn til sjós og lands. Afkoma félagsins hefur verið góð undanfarin misseri og lögð hefur verið áhersla á að styrkja landvinnslu félagsins. Nýverið var fjárfest í tveimur uppsjávarskipum sem munu ná betri meðferð afla en eldri skip sem þau leysa af hólmi. Það er ánægjuefni að sem flestum gefist nú frekari kostur á að fjárfesta í HB Granda og þar með íslenskum sjávarútvegi.“

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka hf.
„Við fögnum því að hafa náð saman um skráningu HB Granda á Aðalmarkað. Við teljum mikilvægt að koma þessu öfluga sjávarútvegsfyrirtæki á Aðalmarkað, sem við teljum gott fyrir sjávarútveginn og áframhaldandi uppbyggingu hlutabréfamarkaðar hér á landi og væntum þess að almenningur og fjárfestar sýni þessu mikinn áhuga.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira