16.09.2010

Hekla boð­in til sölu

Ákveðið hefur verið að bjóða til sölu allt hlutafé í bifreiðaumboðinu Heklu, en fyrirtækið er í eigu Arion banka. Verður fjárfestum, sem uppfylla skilyrði þátttöku, gefinn kostur á að fá upplýsingar um félagið og gera tilboð í kjölfarið.

  • Gert er ráð fyrir að selja allt hlutaféð í einu lagi.

  • Söluferlið er opið öllum fagfjárfestum, sem og einstaklingum og lögaðilum er að mati seljanda hafa viðeigandi þekkingu og nægan fjárhagslegan styrk.

  • Seljandi áskilur sér rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, m.a. vegna samkeppnisreglna og annarra lagalegra hindrana.

Frestur til 29. september
Áhugasömum fjárfestum, er bent á að skila trúnaðaryfirlýsingu til Fyrirtækjaráðgjafar Arion banka sem annast söluferlið. Í kjölfarið verða þátttakendum afhent sölugögn á tímabilinu 21. - 28. september næstkomandi.

Tekið verður við óskuldbindandi tilboðum til kl. 16.00 miðvikudaginn 29. september. Tilboðin verða metin og völdum fjárfestum boðin áframhaldandi þátttaka í söluferlinu. Þeir fjárfestar fá síðan aðgang að frekari upplýsingum um rekstur og fjárhag Heklu áður en óskað verður eftir lokatilboðum og gengið til endanlegra samninga um sölu.

Öflug vörumerki
Saga Heklu nær aftur til ársins 1933 og hefur fyrirtækið haft umboð fyrir bílaframleiðendur ásamt ýmsum véla- og raftækjaframleiðendum. Starfsemi Heklu felst nú eingöngu í sölu á nýjum og notuðum bifreiðum ásamt tilheyrandi þjónustu. Fyrirtækið annast þjónustu og sölu á rótgrónum og traustum vörumerkjum á borð við Volkswagen, Audi, Skoda og Mitsubishi, auk umboðs fyrir vélhjól frá Piaggio.

Markaðshlutdeild 18,5%
Velta bílasviðs Heklu nam um 5,5 milljörðum króna árið 2009 og er markaðshlutdeild um 18,5% af sölu nýrra bíla það sem af er árinu 2010, sem er sambærilegt við markaðshlutdeild síðustu 5 ára að jafnaði.

Nánari upplýsingar um söluferlið má nálgast hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka með því að senda tölvupóst á fyrirtaekjaradgjof.hekla2010@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira