09.02.2009

Helm­ings­lækkun upp­greiðslu­gjalda og rýmk­aðar heimild­ir til yfir­töku íbúða­lána

Í ljósi erfiðra aðstæðna á fasteignamarkaði hefur Kaupþing ákveðið að veita lántakendum íbúðalána tímabundið 50% afslátt af uppgreiðslugjaldi þegar þeir greiða upp lán sín eða greiða inn á þau yfir 1 milljón króna.

Einnig hefur verið ákveðið að tímabundið verði einstaklingum heimilt að yfirtaka íbúðalán Kaupþings við fasteignakaup á gildandi vöxtum lánsins. Til þess að viðskiptavinur bankans njóti vaxtafsláttar, þarf hann að vera félagi í Vexti, vildarþjónustu Kaupþings. Lánið verður að vera innan settra veðsetningarmarka og nýr greiðandi þarf að standast greiðslumat bankans.

Vextir nýrra íbúðalána Kaupþings eru nú 6,65% en 5,90% til þeirra sem njóta vaxtaafsláttar. Mörg af lánum bankans bera 4,90% vexti en 4,15% til þeirra sem njóta vaxtaafsláttar.

Fram til þessa hefur ekki verið heimilt að yfirtaka íbúðalán hjá Kaupþingi á upphaflegum kjörum heldur hafa yfirtekin lán verið færð á gildandi vaxtakjör við undirritun kaupsamnings. Breytingarnar munu liðka fyrir fasteignaviðskiptum og nýtast bæði kaupendum og seljendum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira