24.11.2008

Hér­aðs­dóm­ur Reykja­vík­ur veit­ir Kaupþingi banka hf. greiðslu­stöðv­un

Héraðsdómur Reykjavíkur veitti Kaupþingi banka hf.,("Kaupþing") heimild til greiðslustöðvunar, í dag 24. nóvember 2008. Að mati skilanefndar bankans var nauðsynlegt að stíga þetta skref til að tryggja jafnræði kröfuhafa, í samræmi við íslensk lög og tilskipanir ESB. Greiðslustöðvunin veitir bankanum nauðsynlega vernd gegn lögsóknum. Á meðan á greiðslustöðvun stendur mun bankinn halda starfsleyfi sínu að því marki sem nauðsynlegt er til að viðhalda verðmæti eigna bankans.

Greiðslustöðvunin mun einnig veita Kaupþingi svigrúm til áframhaldandi viðræðna við kröfuhafa, með það að markmiði að hámarka verðmæti eigna fyrir alla hlutaðeigandi. Eins og komið hefur fram hefur verið stofnuð óformleg nefnd kröfuhafa. Með greiðslustöðvuninni er stefnt að því að gera áframhaldandi samstarf við kröfuhafanefndina skilvirkara. Ráðgert er að halda annan fund með nefndinni í desember.

Ólafur Garðarsson, hæstaréttarlögmaður, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður í greiðslustöðvun. Hann mun starfa með skilanefnd bankans, en hún mun, lögum samkvæmt, fara áfram með valdheimildir stjórnar bankans. Markmið hans eru þau sömu og skilanefndar, að varðveita eignir og hámarka greiðslu til lánadrottna.

Greiðslustöðvunin er veitt til kl. 14:00 föstudaginn 13. febrúar 2009. Aðstoðarmanni bankans í greiðslustöðvun er skylt að boða fund með kröfuhöfum, sem haldinn skal eigi síðar en þremur dögum fyrir lok þess tíma. Greiðslustöðvunin getur að hámarki varað í 24 mánuði.

Greiðslustöðvunin nær ekki til Nýja Kaupþings banka hf., en hann tók við starfsemi Kaupþings á Íslandi, 21. október 2008.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira