09.11.2011
Hjálparstarf kirkjunnar fær Evrópuverðlaun fyrir innanlandsaðstoð sína
Í gær tók innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar tók við Eurodiaconia-verðlaununum í ár fyrir vel skipulagt og árangursríkt hjálparstarf, gott skipulag og samstarf við sjálfboðaliða og fyrir að hafa brugðist fljótt við versnandi stöðu bágstaddra á Íslandi.
Arion banki er bakhjarl innanlandsaðstoðar Hjálparstarfsins, en auk fjárframlags stendur bankinn straum af kostnaði við framleiðslu, færslur og aðra bankastarfsemi tengda inneignarkortum í matvöruverslanir sem skjólstæðingar Hjálparstarfsins fá.
Verðlaunin eru kynnt á heimasíðu samtakanna: www.eurodiaconia.org