27.03.2013

Hluta­fé VÍS verð­lagt á 17-20 ma.kr. í al­mennu út­boði sem hefst 12. apríl

Klakki ehf. hyggst selja 60-70% hlutabréfa í Vátryggingafélagi Íslands hf. með almennu útboði sem Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með. Stærð útboðsins nemur 60% af útgefnum hlutum, en mögulegt er að það verði stækkað í allt að 70%. Útboðið hefst föstudaginn 12. apríl og lýkur klukkan 16.00 þriðjudaginn 16. apríl næstkomandi. Stjórn VÍS hefur óskað eftir því að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðallista Kauphallar Íslands í kjölfar útboðsins.

Stefnt er að því að útboðið marki grunninn að dreifðu eignarhaldi á VÍS og er þá bæði horft til þess að almenningur og fagfjárfestar eignist hlut í félaginu og geri félaginu kleift að uppfylla lágmarksskilyrði um dreifingu hlutafjár sem gerð eru til félaga sem fá hlutabréf skráð í Kauphöll Íslands. Klakki hyggst ekki selja einstökum fjárfesti virkan eignarhlut í félaginu, en kaup á 10% hlut eða stærri í tryggingafélagi eru háð því að samþykki Fjármálaeftirlitsins liggi fyrir.

Fjárfestum eru boðnar þrjár áskriftarleiðir, eða svokallaðar tilboðsbækur. Seljandi óskar eftir áskriftum á verðbilinu 6,75–7,95 krónur á hlut í tilboðsbækur A og B, sem samsvarar því að heildarandvirði hlutafjár í VÍS sé 16,9–19,9 milljarðar króna. Í tilboðsbók A eru 10% hlutabréfa í VÍS boðin fjárfestum sem vilja kaupa hlut að andvirði á bilinu frá 100 þúsund krónur til 50 milljónir, en í tilboðsbók B eru boðin 30,1% til fjárfesta sem skrá sig fyrir kaupum yfir 50 m.kr. Þessir hlutir verða allir seldir á sama endanlega útboðsgengi sem seljandi ákveður í lok áskriftartímabilsins, en það verður á framangreindu verðbili. Ákvörðun á verði þeirra hluta sem seldir verða í tilboðsbók C verður ekki með sama hætti, þar sem seljandi býður fjóra 2,475% eignarhluti, samtals 9,9%, og er lágmarksverð þeirra 6,75 krónur á hlut, en öllum hlutum sem seldir verða í tilboðsbók C verður úthlutað á því gengi sem viðkomandi fjárfestir býður. Auk þessarar grunnskiptingar, mun seljandi ráðstafa 10-20% í eina eða fleiri af tilboðsbókunum eftir því sem verð og magn eftirspurnar gefur tilefni til að hans mati.

VÍS er öflugt félag sem á sér djúpar rætur í íslensku samfélagi og langa og farsæla rekstrarsögu, enda um að ræða stærsta vátryggingafélag landsins með ríflega þriðjungs markaðshlutdeild.

Áhugasamir fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um félagið og skilmála almenna útboðsins sem er að finna í lýsingu VÍS, sem félagið birti í dag, 27. mars. Lýsingin er gefin út á íslensku og birt á vefsíðu félagsins, www.vis.is/fjarfestar. Hana má einnig nálgast á vefsíðu umsjónaraðila, www.arionbanki.is, auk þess sem innbundin eintök verða fáanleg frá 3. apríl næstkomandi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira