26.02.2013

Höndl­un ehf. kaup­ir svína­bú­ið að Hýrumel í Borg­ar­firði

Höndlun ehf., félag í eigu Björgvins Jóns Bjarnasonar, hefur keypt bústofn og fasteignir svínabúsins að Hýrumel í Borgarfirði. Höndlun leigir einnig aðstöðu til svínaræktar í Brautarholti. Seljandi er Rekstrarfélagið Braut ehf., dótturfélag Arion banka hf.

Arion banki leysti til sín rekstur svínabúanna að Hýrumel og Brautarholti á árinu 2010. Arion banki seldi svo bústofn og fasteignir að Hýrumel til Stjörnugríss í júlí árið 2010. Ennfremur fékk Stjörnugrís leigða fasteign í Brautarholti undir eldi svína. Samkeppniseftirlitið samþykkti þau kaup en síðar hafnaði áfrýjunarnefnd samkeppnismála kaupunum sem þá gengu til baka.

Þann 3. ágúst 2012 gerði Arion banki verktakasamning við Björgvin Jón, um rekstur svínabúsins á meðan það væri í eigu bankans. Þegar það var endanlega ljóst, í kjölfar dóms Hæstaréttar nr. 277/2012, að sala á rekstrinum til Stjörnugríss myndi ganga til baka gerði Höndlun ehf. tilboð um kaup á bústofni og fasteignum að Hýrumel sem gengið hefur verið að.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira