23.04.2010

Hösk­uld­ur H. Ólafs­son ráð­inn banka­stjóri Arion banka

Stjórn Arion banka hefur ráðið Höskuld H. Ólafsson í starf bankastjóra Arion banka og mun hann taka til starfa eigi síðar en 1. júní næstkomandi. Höskuldur var valinn úr hópi 40 umsækjenda sem sóttu um stöðuna þegar Arion banki auglýsti eftir bankastjóra í desember sl.

Ný stjórn Arion banka sem tók til starfa 18. mars sl. hefur unnið að ráðningu bankastjóra undanfarnar vikur. Við val á nýjum bankastjóra var sérstaklega litið til þess að viðkomandi hefði víðtæka stjórnunarreynslu, m.a. úr fjármálageiranum og byggi yfir hæfileikum til að stýra einum af stærstu bönkum landsins á umbreytingaskeiði í íslensku efnahagslífi. Höskuldur hefur verið forstjóri Valitor - Visa Ísland síðastliðin fjögur ár en þar áður gegndi hann margvíslegum stjórnunarstörfum hjá Eimskip í 17 ár, hér á landi og erlendis.

Höskuldur H. Ólafsson, verðandi bankastjóri Arion banka: „Ég hlakka til að takast á við þau krefjandi verkefni sem bíða mín sem bankastjóra Arion banka. Við erum á afar mikilvægu uppbyggingarskeiði í íslensku samfélagi og sú uppbygging felur í sér fjölmörg tækifæri. Mitt fyrsta verk verður að kynnast nýju samstarfsfólki og setja mig inn í þau verkefni sem fyrir liggja. Ég mun síðan vinna að áframhaldandi þróun á framtíðarsýn og markmiðum Arion banka í góðri samvinnu við stjórn og starfsfólk bankans.“

Monica Caneman, stjórnarformaður Arion banka: „Stjórnin býður Höskuld velkominn til starfa. Höskuldur býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu sem mun nýtast við stjórn bankans. Hann hefur með störfum sínum sýnt hæfni til að takast á við umfangsmikil og krefjandi verkefni. Við bindum miklar vonir við samstarfið og hlökkum til að vinna með Höskuldi að uppbyggingu öflugs banka sem hefur hag viðskiptavina að leiðarljósi.“

Höskuldur er viðskiptafræðingur að mennt. Hann er kvæntur Sigríði Ólafsdóttur og eiga þau þrjú börn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira