16.09.2010

Í kjöl­far dóms Hæsta­rétt­ar

Með boðuðu frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra, í kjölfar dóms Hæstaréttar Íslands í dag er dregið úr óvissu sem ríkt hefur að undanförnu um skuldamál einstaklinga. Hið langvinna óvissuástand hefur valdið viðskiptavinum bankans óþægindum og takmarkað svigrúm hans til úrlausnar á skuldamálum einstaklinga og heimila.

Í kjölfar lagasetningar mun liggja fyrir nákvæmari útfærsla og útreikningar gagnvart viðskiptavinum Arion banka. Arion banki vekur þó athygli á að dómur Hæstaréttar frá í dag fjallar um bílalán en Arion banki er ekki með nein slík lán í bókum sínum.

Bankinn stendur traustum fótum

Arion banki hefur á undanförnum mánuðum unnið með Fjármálaeftirlitinu við að meta hugsanleg áhrif af lánum í erlendri mynt á efnahag bankans. Það er mat bankans að þó fyrirhugað frumvarp ráðherra verði að lögum þá hafi það óveruleg áhrif. Bankinn muni áfram uppfylla skilyrði Fjármálaeftirlitsins um 16% eiginfjárhlutfall og 20% lausafjárhlutfall.

Lántakendum erlendra íbúðalána býðst áfram að greiða 5.000 krónur af hverri milljón

Fram að lagasetningu Alþingis mun Arion banki áfram bjóða viðskiptavinum sínum með íbúðalán í erlendri mynt, og með veði í fasteign, að greiða 5.000 kr. af hverri milljón upphaflegs höfuðstóls. Þá ítrekar bankinn að viðskiptavinir glata ekki betri rétti þótt þeir nýti sér úrræði bankans og áréttar að engar nauðungarsölur á íbúðahúsnæði verða á vegum bankans á þessu ári.

Arion banki þakkar viðskiptavinum sínum biðlundina í þeirri óvissu sem varað hefur allt of lengi. Það er von bankans að senn liggi fyrir skýr sýn og verklag um það hvernig vinna megi að lausn mála í góðri sátt viðskiptavina og bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira