11.05.2012

Íbúð­ar­sparnaður - ný teg­und sparnaðar hjá Arion banka

Arion banki býður frá og með deginum í dag upp á nýja tegund sparnaðar sem nefnist Íbúðarsparnaður og geta viðskiptavinir valið um verðtryggðan eða óverðtryggðan sparnað.

Það er stór ákvörðun að festa kaup á íbúðarhúsnæði og að mörgu að huga. Íbúðarsparnaði er ætlað að auðvelda leiðina að íbúðakaupum og felur í sér þjónustu og ráðgjöf sem snýr að sparnaði og markmiðasetningu í tengslum við íbúðakaup. Sparnaðurinn þarf að vara í að minnsta kosti tvö ár og lágmarksupphæð sem leggja þarf fyrir á mánuði er 10.000 kr.

Auk hagstæðra vaxtakjara á sparnaðarreikningum njóta þátttakendur að tveimur árum liðnum sérkjara við töku íbúðalána hjá Arion banka:

  • 50% afsláttur af lántökugjaldi

  • 100% afsláttur af greiðslumati

  • Innflutningsgjöf að upphæð allt að 50.000 kr.

Þeir sem kjósa Íbúðarsparnað geta skráð sig á arionbanki.is, í næsta útibúi eða í þjónustuveri bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira