01.03.2011
Icesave III - samningaleiðin eða dómstólaleiðin?
Arion banki býður til opins hádegisfundar fimmtudaginn 3. mars næstkomandi þar sem fjallað verður um þá valkosti sem þjóðin stendur frammi fyrir þegar kosið verður um Icesave samninginn þann 9. apríl. Áhersla verður á efnahagsleg áhrif þess ef þjóðin samþykkir samninginn eða hafnar honum í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Framsögumenn verða tveir, Jóhannes Karl Sveinsson, lögfræðingur sem átti sæti í samninganefnd Íslands vegna fyrirliggjandi Icesave samnings og Andrew Speirs, framkvæmdastjóri Hawkpoint ráðgjafarfyrirtækisins og sérfræðingur í fjármálaráðgjöf í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu og skuldaaðlögun fyrirtækja, kröfuhafa og stjórnvalda.
Að lokinni framsögu verða pallborðsumræður þar sem auk framsögumanna taka þátt Vilhjálmur Þorsteinsson, frumkvöðull og fjárfestir og Sigurður Hannesson, stærðfræðingur og fulltrúi InDefence hópsins.
Nauðsynlegt er að skrá mætingu á fundinn þar sem sætaframboð er takmarkað.
Fundurinn stendur frá kl. 11:30 til 13:00 þann 3. mars og fer fram í Arion banka, Borgartúni 19.
Dagskrá:
Fundarsetning
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka.
Hvað er Icesave? Samningurinn - Samningsleysið
Jóhannes Karl Sveinsson, lögfræðingur hjá Landslögum, sat í samninganefnd Íslands vegna Icesave III.
Icesave seen from the perspective of international financial markets; perception and implications
Andrew Speirs, framkvæmdastjóri hjá ráðgjafarfyrirtækinu Hawkpoint. Hann hefur 24 ára reynslu af fjárfestingarbankastarfsemi þar sem hann starfaði hjá Morgan Grenfell, Deutsche Bank og Hawkpoint. Sérsvið hans er að veita fjármálaráðgjöf í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu og skuldaaðlögun fyrirtækja, kröfuhafa og stjórnvalda um víða veröld.
Pallborðsumræður
Auk fyrirlesara taka þátt Sigurður Hannesson, stærðfræðingur og fulltrúi InDefence hópsins og Vilhjálmur Þorsteinsson, frumkvöðull og fjárfestir.
Fundarstjóri
Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka.