29.01.2014
Innri vefur Arion banka tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna 2013
Innri vefur Arion banka er meðal verkefna sem eru komin í úrslit til hinna Íslensku vefverðlauna 2013 en þetta er í fyrsta sinn sem Samtök Vefiðnaðarins (SVEF) veita verðlaun í flokknum innri vefir.
Verðlaunin eru veitt þeim vefverkefnum sem þótt hafa skarað fram úr á árinu og verða úrslitin ljós næstkomandi föstudag, 31. janúar kl. 17, þegar verðlaunin verða veitt í Gamla-bíói við Ingólfsstræti.