13.01.2009
Innri vefur Kaupþings valinn einn af 10 bestu í heimi árið 2009
Hið virta bandaríska fyrirtæki, Nielsen Norman Group (www.nngroup.com), sem sérhæfir sig í rannsóknum og ráðgjöf á sviði notendahæfis og notendaviðmóts vöru, þjónustu, hugbúnaðar og vefja, hefur valið innrivef Kaupþings sem einn af 10 bestu í heiminum árið 2009. Tilkynnt var um vinningshafa 5. janúar og jafnframt var gefin út rúmlega 400 bls. skýrsla um innrivefina sem urðu fyrir valinu.
Í umsögn, sem fylgir með viðurkenningunni, segir Jakob Nielsen, nothæfissérfræðingur, yfirmaður og einn af stofnendum Nielsen Norman Group: „Hjá Kaupþingi hefur verið byggt upp gott vinnuumhverfi og greiðar samskiptaleiðir innan bankans og samtímis hefur verið lögð áhersla á að taka tillit til og ná með persónulegum hætti til allra starfsmanna bankans. Þessi forgangsatriði endurspeglast í hönnun og uppbyggingu innrivefsins sem gefur starfsmönnum kost á gagnkvæmum samskiptum og færir þeim vandað og margþætt efni um starfsfólkið og sem varðar starfsfólkið, efni sem er sett fram á látlausan og óþvingaðan hátt...“
Niðurstaða Nielsen Norman Group felur í sér mikla viðurkenningu fyrir Kaupþing og staðfestir enn og aftur að vefir Kaupþings banka eru á heimsmælikvarða og meðal hinna bestu.
Meðal fyrirtækja sem fengu viðurkenningu í ár auk Kaupþings má nefna Deloitte & Touche Tohmatsu, HSBC Bank í Brasilíu, þýska fyrirtækið BASF SE og bandaríska örgjörvaframleiðandann Advanced Micro Devices (AMD). Kaupþing er þarna í hópi mjög stórra fyrirtækja þar sem starfsmannafjöldi er að meðaltali 37.500 manns.
Meðal fyrirtækja, sem urðu fyrir valinu árið 2008, má nefna Bank of America, British Airways, Barnes and Noble og IKEA North America.