09.08.2011
Íslandsmót unglinga í höggleik
Í gær var einn af hápunktum Arion banka mótaraðarinnar í golfi þegar Íslandsmót unglinga í höggleik fór fram.
Lokaviðureignin var í blíðskaparveðri á Grafarholtsvelli og dugði ekki annað til en bráðabani til að útkljá síðustu úrslitin. Svo mikil aðsókn var að mótinu að margir urðu frá að hverfa.
Mikil ánægja ríkti meðal keppenda og aðstandenda með mótið og þakkar Arion banki Golfsambandi Íslands fyrir framkvæmdahlið þess.
Arion banki óskar Íslandsmeisturunum til hamingju með árangurinn.
Hér má sjá verðlaunahafa í Íslandsmótinu í höggleik.