19.09.2011

Ís­lensk ný­sköp­un stýr­ir orku­notkun Arion banka

Arion banki hefur valið íslenskan nýsköpunarbúnað frá ReMake Electric til að stjórna orkunotkun í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni og í nýja útibúinu á Höfða. Um er að ræða orkustjórnunarkerfi, byggt á íslensku hugviti, sem nýsköpunarfyrirtækið hefur þróað.

Orkustjórnunarkerfið heitir eTactica (etactica.com) en nýjungin felst í því að rafskynjunarbúnaði frá ReMake Electric er komið fyrir í rafmagnstöflum í bankanum þar sem álag og notkun raforku er mæld og gerð sýnileg bæði í rafmagnstöflunni og á eTactica vefsíðu bankans. Á vefsíðunni hefur Arion banki yfirsýn yfir mismunandi rafmagnsgreinum, rafmagnstöflum og útibúum bankans á einum miðlægum stað sem skapar forsendur fyrir sparnaði í orkunotkun. Kerfið sendir tilkynningar um breytingar og óeðlilega notkun með smáskilaboðum og tölvupósti sem gerir Arion banka kleift að fyrirbyggja óþarfa orkunotkun og tryggja að vandamál verði augljós í tæka tíð.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka: „Það skiptir máli fyrir Arion banka að vera í fararbroddi í rekstrarstjórnun og orkunýtingu. Með því að velja kerfið frá ReMake Electric fær bankinn verkfæri til að halda úti ítarlegu eftirliti með raforkunotkun sem skilar okkur auknum áreiðanleika og sparnaðarleiðum. Okkur er einnig kappsmál að stuðla að nýsköpun íslenskra fyrirtækja til að efla íslenskt atvinnulíf og erum við stolt af því að vera fyrsti viðskiptavinur ReMake‘‘

Hilmir Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri ReMake Electric ehf: „Það er mikið ánægjuefni að Arion banki sé okkar fyrsti viðskiptavinur. Samstarfið við bankann er mikilvægur áfangi í okkar þróun og við hlökkum til að ná árangri í sameiningu.“

Um ReMake Electric

Nýsköpunarfyrirtækið ReMake Electric hefur verið styrkt af Tækniþróunarsjóði og Impru í vöruþróun sinni og náð miklum árangri. Fyrirtækið sigraði í hugmyndasamkeppni N1s árið 2009 og vann síðan Gullegg Innovits árið 2010. Enn fremur komst ReMake í undanúrslit Global Cleantech keppninnar í Kísildal í Kaliforníu árið 2010 og í undanúrslit Nordic Cleantech keppninnar í Trolleholm kastala í Svíþjóð 2011.

Hilmir Ingi Jónsson frá ReMake Electric og Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka við undirskrift samningsins

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira