29.06.2012

Ís­lensk­ir aðilar gera Alterra Power kauptil­boð í HS Orku

Modum Energy og sjóðir í rekstri Stefnis hf., hafa í samstarfi við Arion banka hf. gert kauptilboð í allan eignarhlut kanadíska fyrirtækisins Alterra Power Corp. í orkufyrirtækinu HS Orku hf. Gangi kaupin eftir verður félagið alfarið í eigu Íslendinga.

Á grundvelli kauptilboðsins er samkomulag um að láta á það reyna hvort samningar náist um kaupin. Aðilar stefna að því að á haustmánuðum liggi fyrir hvort af kaupunum geti orðið. Unnið verður að því að stækka hóp fjárfesta í verkefninu m.a. með aðkomu lífeyrissjóða. Verði af kaupunum er stefnt að skráningu félagsins í kauphöll á næstu misserum og mun almenningi þannig gefast kostur á að eignast hluti í HS Orku.

Alterra Power Corp. er eigandi 66,6% hlutar í HS Orku. Eigandi 33,4% hlutar er Jarðvarmi slhf., samlagshlutafélag í eigu íslenskra lífeyrissjóða.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira