06.10.2011
Íslenskur sjávarútvegur - skýrsla Greiningardeildar Arion banka
Umfangsmiklar breytingar hafa verið boðaðar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Þær hafa leitt til mikillar óvissu um rekstrarhorfur í sjávarútvegi. Hugmyndin með nýrri fiskveiðilöggjöf er að auðvelda nýliðun í sjávarútvegi og styðja betur við bakið á einstökum byggðarlögum.
Að mati greiningardeildar er varhugavert að ráðast í jafnmikla uppstokkun á fiskveiðistjórnunarkerfinu og fyrirhugað frumvarp leggur til. Ekki getur talist ásættanlegt fyrir jafn fjármagnsfreka grein og sjávarútveg að búa við þá óvissu sem frumvarpinu fylgir nái það fram að ganga í óbreyttri mynd.
Íslenskur sjávarútvegur - skýrsla Greiningardeildar Arion banka.pdf