01.06.2012
Jákvæð merki í íslensku atvinnulífi
Í samskiptum okkar við fyrirtæki í viðskiptum við Arion banka verðum við vör við jákvæð merki. Mörg fyrirtæki eru að ná eftirtektarverðum árangri í sínum rekstri þrátt fyrir að ytra umhverfi hafi verið krefjandi. Á hverjum degi heyrum við slíkar sögur. Arion banki fagnar þessum góða árangri. Okkur langar að gera þessi jákvæðu tíðindi sýnileg og höfum því hafið skipulega söfnun á fréttum af árangri sem fyrirtæki eru að ná.
Upplýsingarnar verða birtar á vef Arion banka.
Dæmi um góðan árangur:
Rafholt
23% fjölgun starfsmanna
55% fleiri þjónustusamningar
12% fjölgun verksamninga
Hreint
9 % fjölgun starfsfólks
15 % aukning á veltu
21 % fjölgun viðskiptavina
75 % stækkun á aðalskrifstofu vegna þvottahúss og lagers
Svansvottun á öllum hreinlætisvörum sem fyrirtækið selur
Kjörís
Verðlaun "Mjúkís ársins"
Aukning milli áranna 2010 og 2011 er 28%
36 þúsund fleiri Hlunkar seldir árið 2011 en 2010
Héðinn
Rúm 25% veltuaukning milli ára
Í hópi framúrskarandi fyrirtæka hjá Creditinfo annað árið í röð
Viðurkenning Icelandic Fisheries Award 2011, sem framúrskarandi framleiðandi fiskvinnslubúnaðar í hópi stærri fyrirtækja.