30.08.2010

Jó­hann­es Jóns­son hætt­ur hjá Högum

Jóhannes Jónsson, kaupmaður, hefur vikið úr stjórn Haga hf. og hætt störfum og afskiptum af félaginu. Ákvæði úr samkomulagi því sem Arion banki gerði við Jóhannes Jónsson í febrúar sl. um tilhögun á stjórnun og sölu Haga hafa verið felld úr gildi, þar með talinn forkaupsréttur hans á 10% hlutafjár í Högum.

Jóhannes kaupir úr samstæðu Haga þrjár sérvöruverslanir og hlut Haga í matvöruverslunum í Færeyjum.

Hagar eru í söluferli hjá Arion banka og verður endanleg tilhögun þess og framkvæmd kynnt á næstunni.

Arion banki og Jóhannes Jónsson hafa gert með sér samkomulag um málefni Haga. Með samkomulaginu næst nauðsynleg sátt sem er forsenda framvindu sölunnar á Högum og áframhaldandi stöðugleika í rekstri að mati bankans.

Undir samstæðu Haga falla Bónus, Hagkaup, 10-11, Útilíf, Zara, Debenhams, Topshop, Coast, Evans, Dorothy Perkins, Oasis, Karen Millen, All Saints, Day og Warehouse. Jafnframt eiga Hagar innkaupafyrirtækin Aðföng, Hýsingu, Banana og Ferskar kjötvörur. Arion banki eignaðist 95,7% hlut í Högum við yfirtöku á eignarhaldsfélaginu 1998 í október 2009.

Í samkomulaginu felst að Jóhannes kaupir allan eignarhlut Haga i færeyska félaginu SMS sem er 50%. SMS rekur matvöruverslanir þar í landi en þær eru ótengdar verslunarrekstri félagsins á Íslandi og eina eign Haga utan Íslands. Þá kaupir Jóhannes sérvörubúðirnar Top Shop, Zara og All Saints, enda er það niðurstaða Arion banka að ekki sé æskilegt að selja þær með samstæðunni vegna tengsla milli eigenda viðkomandi umboða og fjölskyldu Jóhannesar.

Kaupverð þessara eigna er 1.237,5 milljónir króna sem er nokkru hærra en bókfært verðmæti þeirra á efnahagsreikningi Haga og er sanngjarnt verð að mati sérfræðinga bankans.

Auk þess að falla frá forkaupsrétti eru í samkomulaginu ströng skilyrði um að Jóhannes og aðilar honum nátengdir efni ekki til samkeppni við Haga næstu 18 mánuði eftir undirritun samningsins. Gerður hefur verið 12 mánaða starfslokasamningur við Jóhannes auk þess sem hann fær 90 milljóna króna eingreiðslu við fullnaðaruppgjör á viðskiptum sínum við Arion banka. Jafnframt kaupir Jóhannes eignir á markaðsvirði; bíl, íbúð og sumarhús sem hann hefur haft til umráða.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka: „Þær breytingar sem felast í samkomulaginu eru að mati bankans nauðsynlegur undanfari sölunnar á Högum. Þekking Jóhannesar á rekstri Haga hefur nýst vel til að koma félaginu yfir erfiða hjalla en nú taka aðrir við og ljúka söluferlinu. Það er mat bankans að hagsmunir Jóhannesar og bankans fari ekki lengur saman þar sem Jóhannes hefur lýst því yfir að hann hyggist bjóða í félagið í því söluferli sem nú fer af stað og því óhjákvæmilegt að gera breytingar sem setja alla fjárfesta við sama borð. Jóhannes gefur eftir 10% forkaupsrétt og samþykkir 18 mánaða samkeppnisbann. Ákvarðanir um að selja sérleyfisverslanir skýrast af því að umboðin fyrir þær eru ekki föst í hendi vegna persónulegra tengsla og því ekki forsvaranlegt að selja þær með Hagasamstæðunni. Salan á 50% eignarhlut í SMS byggist á því að þar er um eign að ræða sem tilheyrir ekki starfsemi Haga hér á landi. Að auki er verið að selja þessar eignir á góðu verði fyrir Haga. Eftir standa Hagar sem söluvænlegt fyrirtæki í góðum rekstri.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira