19.01.2012

JP Morg­an verð­laun­ar Viðskiptaum­sjón Arion banka

Viðskiptaumsjón Arion banka tók í gær á móti viðurkenningu frá JP Morgan Chase Bank, þriðja árið í röð, fyrir framúrskarandi frágang á svokölluðum MT103 SWIFT skeytum. Hátt í 9000 slíkar færslur eiga sér stað hjá viðskiptaumsjón í hverjum mánuði og er ríflega þriðjungur þeirra í dollurum sem þýðir að þær færslur fara í gegnum JP Morgan sem er helsti viðskiptabanki Arion banka. Árið 2011 voru 99,23% skeytanna rétt að öllu leyti og runnu þar af leiðandi beint í gegnum kerfi JP Morgan án nokkurra athugasemda (Straight Through Processing eða STP). Árin 2010 og 2009 náðist sambærilegur árangur.

„Það kom sérstaklega fram við afhendinguna að mjög fáir viðskiptavinir JP Morgan næðu svona góðum árangri og við erum auðvitað mjög stolt af okkar fólki. Með svona góðum árangri tekst okkur að halda kostnaði í lágmarki og bjóða viðskiptavinum okkar upp á hraða og áreiðanlega þjónustu þegar kemur að SWIFT færslum,“ segir Delia Howser, SWIFT sérfræðingur í viðskiptaumsjón.
Viðurkenningin er veitt einu sinni á ári og komu starfsmenn á vegum JP Morgan til landsins meðal annars til að afhenda viðurkenninguna sem ber heitið „The 2011 Elite Quality Recognition Award for Outstanding Achievement of Best-in-Class“.

Delia Howser, Louise Hueting, Leearn Ellis, Helena Rúriksdóttir, forstöðumaður hópsins Frágangur símgreiðslna innan viðskiptaumsjónar, Jens Guthe, Eeva Von Bonsdorf og Einar Már Hjartarson, sviðsstjóri.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira