22.06.2009
Kappsamir drengir á Kaupþingsmóti
Kaupþingsmótið í knattspyrnu fór fram á Skaganum um síðastliðna helgi. Mótið var haldið í 25. sinn og er ætlað 7-8 ára drengjum í 7. fl. 1100 keppendur voru mættir til leiks frá 25 félögum, alls 120 lið.
Mótið tókst í alla staði mjög vel og fóru allir glaðir heim með verðlaunapening og húfu sem gjöf frá bankanum.
Úrslit og myndir frá mótinu er hægt að nálgast á heimasíðu mótsins www.kaupthingsmot.blog.is.