02.12.2008

Kaupþing banki ósk­ar eft­ir viður­kenningu á greiðslu­stöðv­un í Bandaríkj­unum

Kaupþing banki hf. (bankinn) lagði þann 30. nóvember 2008 inn beiðni (e. voluntary petition) samkvæmt 15. kafla bandarísku gjaldþrotalaganna, í þeim tilgangi að fá greiðslustöðvun bankans, sem veitt var af Héraðsdómi Reykjavíkur, viðurkennda í Bandaríkjunum. Markmið beiðninnar er að vernda eignir bankans í Bandaríkjunum, en sú vernd er svipuð þeirri vernd sem greiðslustöðvun veitir á evrópska efnahagssvæðinu, samkvæmt ESB tilskipun 2001/24/EB um endurskipulagningu og slit lánastofnana, í þeim tilangi að hámarka verðmæti eigna og tryggja sanngjarna skiptingu verðmæta á milli kröfuhafa. Með ákvörðun dómstóls í Bandaríkjunum þann 1. desember var bankanum jafnframt veitt bráðabirgðavernd (e. provisional injunctive relief) samkvæmt bandarísku gjaldþrotalögunum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira