09.10.2008

Kaupþing leit­ar til Fjármála­eftir­litsins

Yfirlýsing frá Sigurði Einarssyni, stjórnarformanni Kaupþings:

„Þegar stjórn Kaupþings banka hf. fór yfir stöðu bankans á vinnufundi dagana 25.-26. september gekk rekstur bankans vel og ljóst þótti að afkoma þriðja ársfjórðungs yrði góð. Að meðaltali höfðu innlán aukist um tæpa fjóra milljarða króna hvern dag undanfarna sex mánuði. Lausafjárstaða bankans var því góð og áform uppi um að hefja uppkaup á skuldabréfum útgefnum af bankanum. Lausafjárstaða Kaupthing Singer & Friedlander, dótturfélags bankans í Bretlandi, var einnig góð – líkast til best meðal allra banka í Bretlandi.
Kaupþing hafði um langt skeið búið sig undir niðursveiflu á verðbréfamörkuðum og þá einkum og sér í lagi á Íslandi enda hafði það blasað við í allnokkur ár að gengi krónunnar var alltof hátt skráð. Til að mæta hugsanlegri niðursveiflu hafði Kaupþing varið eigið fé sitt með því að færa það í erlenda mynt, dregið úr vexti lána til fyrirtækja á Íslandi og gefið eftir markaðshlutdeild á því sviði. Kaupþing hafði ekki markaðssett lán í erlendri mynt. Þá hafði bankinn aukið verðtryggðar eignir í eignasafni sínu á Íslandi og stóraukið hlut innlána í fjármögnun sinni.

Um svipað leyti voru óveðurský tekin að hrannast upp á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og traust þvarr hratt á milli fjármálastofnana. Bankar urðu tregari til að lána hver öðrum og kölluðu inn lán. Að morgni 29. september bárust fréttir af erfiðleikum Glitnis og yfirvöld tilkynntu áform um kaup á 75% hlut í bankanum. Hófst þá atburðarás sem enginn sá fyrir eða gat haft stjórn á. Þetta smitaði út frá sér í íslenska hagkerfinu og krónan hóf frjálst fall. Lánshæfismatsfyrirtæki lækkuðu lánshæfismat ríkisins og íslensku bankanna og erlendir fjárfestar hrundu af stað skriðu þar sem þeir reyndu að losa sig við íslenskar eignir óháð því hversu traustar þær voru.

Eftir að breskir innstæðueigendur drógu innstæður sínar úr Icesave, innlánareikningi Landsbankans í Bretlandi tók Fjármálaeftirlitið yfir stjórnun Landsbankans. Í kjölfar þeirra frétta jókst verulega útflæði innlána hjá Kaupthing Edge í Bretlandi, þrátt fyrir að sá grundvallarmunur væri á Kaupthing Edge og Icesave að Kaupthing Edge var tryggt af breska innstæðutryggingasjóðnum en Icesave af þeim íslenska.

Eftir að breski fjármálaráðherrann lýsti því yfir að Íslendingar hygðust ekki standa við skuldbindingar sínar gagnvart breskum innstæðueigendum, tók breska fjármálaeftirlitið Kaupthing Edge af dótturfyrirtæki bankans Kaupthing Singer & Friedlander. Í kjölfar þess var Kaupthing Singer & Friedlander sett í greiðslustöðvun og vísuðu lánadrottnar bankans þá til þess að greiðslustöðvun dótturfyrirtækis væri vanefnd samkvæmt ákvæðum lánasamninga móðurfélagsins og því ígildi greiðslufalls. Skipti þá engu að lausafé móðurfélagsins væri nægjanlegt og staða þess góð."

Kaupþing banki hefur nú farið þess á leit við Fjármálaeftirlitið að það, í samræmi við heimildir í nýjum lögum nr. 125/2008 sem sett voru vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði, taki yfir vald hluthafafundar Kaupþings banka hf. Jafnframt hefur stjórn bankans í heild sinni sagt af sér.

Fjármálaeftirlitið hefur skipað skilanefnd sem fer nú með allar heimildir stjórnar. Markmið þessara aðgerða er að tryggja fullnægjandi innanlandsstarfsemi bankans og stöðugleika íslensks fjármálakerfis. Útibú bankans hér á landi verða opin eftir sem áður og stefnt er að því að viðskiptavinir bankans finni eins lítið fyrir breytingum og kostur er.

Á meðan skilanefnd fer með málefni bankans er ekki unnt að krefjast aðfarargerðar, kyrrsetningar eða gjaldþrotaskipta gagnvart bankanum. Innköllun til lánardrottna bankans verður ekki gefin út.


Frekari upplýsingar veitir:
Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs Kaupþings í síma 444 6112 eða ir@kaupthing.com

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira