25.10.2010

Kjöl­festu­hlut­ur í Högum hf. boð­inn til sölu

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. hefur til sölumeðferðar allt að 99,5% af útistandandi hlutabréfum í Högum hf. Eignarhluturinn er í eigu Eignabjargs ehf. sem er dótturfélag Arion banka. Áformað er að óska eftir því að hlutabréf í Högum verði tekin til viðskipta í kauphöll, á aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland hf., og bjóða fagfjárfestum og almenningi að kaupa hluti í félaginu í aðdraganda þeirrar skráningar.

Gert er ráð fyrir að eignarhald Haga verði dreift, en áður en til þess kemur að almennum fjárfestum verði boðnir hlutir í félaginu er talið æskilegt að upplýsingar liggi fyrir um það hvaða hluthafar muni veita Högum forystu þegar félagið verði skráð í kauphöll. Fyrsti hluti söluferlis á eignarhlut bankans í Högum snýr því að sölu á kjölfestuhlut. Samhliða fyrirhugaðri sölu á kjölfestuhlut verða kannaðir möguleikar á að selja í einu lagi framangreindan 99,5% eignarhlut í Högum.

Söluferlið - fyrsti hluti

Í fyrsta hluta söluferlisins er boðinn til sölu kjölfestuhlutur í Högum og er þá miðað við 15-29% eignarhlut. Í þessum hluta ferlisins er jafnframt gefinn kostur á að leggja fram tilboð í allan hlut bankans í Högum sem nemur um 99,5% af útistandandi hlutum í félaginu.

Fyrsti hluti söluferlisins er opinn öllum áhugasömum fjárfestum með til þess bæran fjárhagslegan styrk. Seljandi áskilur sér rétt til þess að takmarka aðgang að þessum hluta söluferlisins, meðal annars ef fyrir hendi eru lagalegar hindranir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna.

Fjárfestar sem óska eftir að taka þátt í fyrsta hluta söluferlisins eru beðnir að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka. Skulu þeir leggja fram trúnaðaryfirlýsingu á þar til gerðu formi í síðasta lagi miðvikudaginn 3. nóvember 2010.

Sölugögn verða kynnt og afhent þátttakendum á næstu vikum. Tekið verður við óskuldbindandi tilboðum til mánudagsins 15. nóvember 2010. Tilboðum skal skilað á þar til gerðu formi.

Í kjölfarið verða tilboðin metin og völdum fjárfestum boðin áframhaldandi þátttaka í fyrsta hluta söluferlisins. Munu þeir fjárfestar fá aðgang að frekari upplýsingum um rekstur og fjárhag Haga áður en óskað verður eftir bindandi tilboðum og gengið til endanlegra samninga um kaup og sölu á kjölfestuhlut (eða öllum eignarhlut bankans) í Högum.

Seljandi áskilur sér rétt til að i) gera breytingar á skilmálum og/eða viðmiðum söluferlisins og/eða ii) ganga til samninga við hvaða tilboðsgjafa sem hann kýs eða hafna öllum.

Frekari upplýsingar

Upplýsingar um söluferlið má nálgast hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka í síma 444 6805 eða með því að senda tölvupóst á fyrirtaekjaradgjof.hagar2010@arionbanki.is.

Hagar eru leiðandi fyrirtæki á íslenskum smásölumarkaði. Undir samstæðu Haga falla verslanakeðjurnar Bónus, Hagkaup, Útilíf, verslanir á Íslandi undir vörumerkjunum All Saints, Coast, Day, Debenhams, Dorothy Perkins, Evans, Karen Millen, Oasis, Top Shop, Warehouse og Zara, ásamt innkaupafyrirtækjunum Aðföngum, Hýsingu, Banönum og Ferskum kjötvörum. Á síðastliðnu fjárhagsári, sem lauk 28. febrúar 2010, námu heildartekjur framangreindra eininga 65,1 milljarði króna og var rekstrarhagnaður (EBITDA) þeirra 4,0 milljarðar króna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira