10.11.2010
Kringluútibú lokað á laugardag - uppfærsla á tölvukerfum bankans
Útibú Arion banka í Kringlunni verður lokað laugardaginn 13. nóvember vegna uppfærslu á tölvukerfum bankans. Vefur bankans, netbankinn, hraðbankar og önnur tölvukerfi bankans verða óaðgengileg á meðan á uppfærslunni stendur.
Áætlað er að uppfærslan hefjist kl. 06:00 á laugardagsmorgni og standi til kl. 10:00. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.