25.10.2010

Kvenna­frí­dag­urinn

Sunnudaginn 24. október voru 35 ár liðin síðan konur lögðu niður vinnu í einn dag til að minna á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Í dag 25. október er Kvennafrídagurinn 2010 og mun fjöldi kvenna um land allt leggja niður störf klukkan 14:25.

Skipulögð hefur verið dagskrá í tilefni dagsins víða um land. Í Reykjavík hittast konur á Hallgrímskirkjutorgi kl. 15:00 og ganga niður að Arnarhóli. Einnig eru skipulagðir viðburðir á Egilsstöðum, Akureyri, Ísafirði og í Skagafirði. Dagskráin í dag er helguð baráttu kvenna gegn kynferðisofbeldi.

Fjöldi starfsfólks innan Arion banka mun taka þátt í Kvennafrídeginum og því munu útibú bankans, öll nema Kringlan og Vesturbæjarútibú loka kl. 14:00. Einnig verður hægt að hringja í þjónustuver bankans í síma 444 7000. Biðjum við viðskiptavini bankans um að sýna þessu skilning og þolinmæði.

Gleðilegan kvennafrídag!

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira