03.12.2012

Kvenna­lands­l­ið Ís­lands í hand­bolta í Arion banka

Kvennalandslið Íslands í handbolta kom á dögunum í Arion banka og átti þar góða stund með fjölskyldum sínum. Stelpurnar hafa stimplað sig sterkt inn á tveimur stórmótum og nú er það þriðja framundan, Evrópumeistaramótið í Serbíu. Arion banki hefur til margra ára verið bakhjarl HSÍ og hefur samstarfið verið farsælt. Við erum stolt af því að styðja við bakið á þeirri íþrótt sem hefur í áraraðir sameinað þjóðina og fært henni mikla sigra.

Fyrir áhugafólk um handbolta er áhugavert að fara inn á fésbókarsíðu Arion banka og fylgjast með greiningu leikja íslenska liðsins. Fyrsti leikurinn verður þriðjudaginn 4. desember.

Áfram Ísland!

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira