27.02.2009
Kvennastjórn Nýja Kaupþings
Hulda Dóra Styrmisdóttir skrifstofustjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar er nýr stjórnarformaður bankans. Hulda hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Hún starfaði m.a. sem framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka á árunum 2001-2004. Þá hefur hún sinnt stjórnendaráðgjöf og kennslu.
Hulda Dóra er hagfræðimenntuð frá Bandaríkjunum, hefur MBA gráðu frá Frakklandi og diplóma í klínískri vinnusálfræði frá sama landi.
Kaupþing er fyrsti bankinn hér á landi sem hefur einungis konur í stjórn. Þær sem skipa stjórn bankans auk Huldu Dóru eru, Auður Finnbogadóttir, Erna Bjarnadóttir, Helga Jónsdóttir og Drífa Sigfúsdóttir.
Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Kaupþings:
„ Ég fagna því að búið sé að skipa stjórnarformann bankans. Þá er sérstakt ánægjuefni að Kaupþing er fyrsti bankinn og jafnframt fyrsta stóra fyrirtækið hér á landi sem hefur eingöngu konur í sinni stjórn. Þetta samræmist einnig áherslu bankans um að auka hlut kvenna meðal stjórnenda bankans.“