06.09.2010

Kyrr­stöðu­samningur ver hags­muni bankans

Að gefnu tilefni vill Arion banki árétta eftirfarandi um kyrrstöðusamning (e. stand still agreement) við eignarhaldsfélagið Gaum:

  • Bankinn leitar allra leiða til að tryggja hagsmuni sína sem kröfuhafa í þessu máli sem öðrum

  • Kyrrstöðusamningar eru í ákveðnum tilvikum leið til verja slíka hagsmuni og eru í eðli sínu tímabundin frysting lána meðan unnið er að greiningu og úrlausn vandans

  • Arion banki hefur tímabundið fryst lán hjá hundruðum viðskiptavina sinna, einstaklingum sem fyrirtækjum, á undanförnum mánuðum

  • Í öllum þessum tilvikum væntir bankinn þess að eitthvað gerist áður en fresturinn er úti sem verði til þess að bankinn sjái hagsmunum sínum betur borgið sem kröfuhafa

  • Kyrrstöðusamningar eru gerðir til nokkurra daga, vikna eða til lengri tíma

  • Fjöldi kyrrstöðusamninga hefur verið gerður hér á landi síðustu misserin þar sem ýmist einn kröfuhafi eða fleiri saman gefa skuldurum færi á að endurskipuleggja fjármál sín

  • Öll umræða um að kyrrstöðusamningur feli í sér sérkjör fyrir útvalda er því villandi

  • Aðgerðir í einstökum málum eru háðar mati í hverju tilfelli með hagsmuni bankans að leiðarljósi

  • Þó að einn kröfuhafi geri kyrrstöðusamning við skuldara, hefur það ekki áhrif á fullnustuaðgerðir annarra kröfuhafa

  • Í ljósi ummæla Umboðsmanns skuldara mun bankinn óska eftir fundi með embættinu

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira