13.11.2009
Lækkaðu yfirdráttarheimildina eftir þínum þörfum
Nýja Kaupþing hefur gert það enn aðgengilegra fyrir viðskiptavini að lækka yfirdráttarheimild sína í netbankanum. Þetta kemur sér vel fyrir þá sem vilja lækka skuldabyrði og þannig vaxtagreiðslur en geta ekki skuldbundið sig til að greiða ákveðna upphæð mánaðarlega. Þessu fylgja engin skilyrði eða skuldbinding heldur er ætlunin að viðskiptavinir ráði ferðinni og lækki yfirdráttinn eftir getu hverju sinni.