21.09.2010

Land­ey, dótt­ur­félag Arion banka býður 79 íbúð­ir til sölu í hjarta Reykja­vík­ur

101 Skuggahverfi býður til sölu 79 íbúðir sem staðsettar eru á einum eftirsóttasta stað höfuðborgarsvæðisins. Um er að ræða þyrpingu íbúðabygginga í miðborg Reykjavíkur á einum fegursta útsýnisstað borgarinnar.

101 Skuggahverfi er í eigu Landeyar ehf., dótturfélags Arion banka. Landey tók til starfa haustið 2009 og er ætlað að fara með eignarhald á nýbyggingum og fasteignaþróunarverkefnum sem bankinn hefur eignast og eru ekki tekjuskapandi. Markmið Landeyjar er að varðveita og hámarka þau verðmæti sem bundin eru í eignum félagsins og er sala þessara 79 íbúða liður í því.

Eftirfarandi íbúðir er nú boðnar til sölu, í heild eða að hluta:

  • VATNSSTÍGUR 16-18, 40 íbúðir, 5.665 birtir m2

  • VATNSSTÍGUR 14, 8 íbúðir, 1.007 birtir m2

  • LINDARGATA 37, 31 íbúð, 3.755 birtir m2

Fasteignirnar afhendast á ólíkum byggingarstigum.

Auk þess er til sölu byggingarréttur fyrir:

  • LINDARGÖTU 39, 3.789 birtir m2

  • VATNSSTÍG 20-22, 5.822 birtir m2

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu 101 Skuggahverfis að Hátúni 2B í síma 594-4210/660-4210, netfang: thorsteinn@101skuggi.is

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira