22.03.2011

Lands­bank­inn kaup­ir hlut í Arion verð­bréfa­vörslu

Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing um að Landsbankinn kaupi nýtt hlutafé í Arion verðbréfavörslu hf. Arion banki er í dag eigandi alls hlutafjár. Viljayfirlýsingin er undirrituð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki eftirlitsstofnana. Við kaup Landsbankans á nýju hlutafé í Arion verðbréfavörslu verður nafni félagsins breytt í Verdis.

Arion verðbréfavarsla er þjónustufyrirtæki fyrir innlendar og erlendar fjármálastofnanir og fyrirtæki á fjármálamarkaði. Það býður sérsniðnar og einfaldar lausnir í vörslu verðbréfa, bakvinnslu og umsýslu verðbréfasjóða.

Samkvæmt yfirlýsingunni munu Landsbankinn og Verdis gera með sér þjónustusamning sem felur í sér að Verdis annast uppgjör og vörslu verðbréfa og þjónustu fyrir Landsbankann og dótturfélag Landsbankans sem rekur verðbréfa, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði.

Markmiðið með kaupunum er að ná fram hagræðingu. Það verður gert með aukinni sjálfvirkni og samnýtingu starfsfólks og ýmissa rekstrarþátta. Auk þess verður mun hagkvæmara að byggja upp þekkingu, rekstur og tölvukerfi á einum stað.

Engar uppsagnir verða við þessa breytingu en starfsfólk frá Landsbankanum mun flytjast til Verdis. Starfsfólk Landsbankans og þeirra þekking verður mikilvæg viðbót við þann öfluga hóp starfsmanna sem í dag starfar hjá Arion verðbréfavörslu.

Forsvarsmenn Arion banka og Landsbankans eru einhuga um að fjölga hluthöfum Verdis í framtíðinni og er stefnt að því að sameiginlegur eignarhlutur þeirra verði kominn niður fyrir 50% innan þriggja ára.

Stefnt er að undirritun samnings í samræmi við efni viljayfirlýsingarinnar fyrir 30. apríl 2011.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira