07.07.2010

Lán­tak­end­um er­lendra íbúða­lána býðst að greiða 5.000 af hverri millj­ón

  • Lántakendur erlendra íbúðalána greiða 5.000 kr. af hverri milljón upphaflegs höfuðstóls lánsins á verðlagi við lánveitingu

  • Nauðungaruppboðum frestað út árið 2010

  • Betri réttur lántakenda tryggður

  • Lausnir bankans vegna erlendra íbúðalána framlengdar til 1. september

Arion banki hefur ákveðið að bjóða einstaklingum með erlend íbúðalán hjá bankanum, með veði í fasteign, að greiða mánaðarlega 5.000 kr. af hverri milljón upphaflegs höfuðstóls lánsins á verðlagi við lánveitingu. Viðskiptavinur með 13 milljón kr. erlent íbúðalán myndi samkvæmt þessu greiða 65 þúsund kr. á mánuði. Með þessu vill Arion banki koma til móts við viðskiptavini sína sem skulda erlend íbúðalán þar til fordæmisgefandi hæstaréttardómar falla um lán bankans.

Í ljósi þeirrar óvissu sem nú ríkir vegna erlendra lána hefur Arion banki enn fremur ákveðið að framlengja lausnir sínar vegna erlendra lána um tvo mánuði eða til 1. september 2010. Þá ítrekar bankinn að viðskiptavinir glata ekki betri rétti þó þeir nýti sér úrræði bankans. Bankinn áréttar einnig að engar nauðungarsölur á íbúðahúsnæði verða á vegum bankans á þessu ári.

Hægt er að sækja um framangreindar breytingar á mánaðarlegum afborgunum erlendra íbúðalána í útibúum bankans og taka þær gildi frá og með næsta gjalddaga.

Arion banki vonar að þetta bráðabirgðaúrræði nýtist viðskiptavinum með erlend íbúðalán þar til úr allri óvissu verður skorið. Bankinn vonar að niðurstaða fáist sem allra fyrst og biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi staða hefur valdið.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira