23.10.2009
Láttu sjá þig
Endurskinsmerkjaherferð Nýja Kaupþings, Umferðastofu og Lögreglu
Öll börn fædd árið 2003 fá send til sín endurskinsmerki frá Nýja Kaupþingi á næstu dögum. Þetta er liður í átakinu Láttu sjá þig sem er í samstarfi við Umferðarstofu og Lögreglu.
Eftir helgi geta allir nálgast endurskinsmerki í útibúum Nýja Kaupþings á meðan birgðir endast. Þeir sem eru fjarri útibúum bankans geta sent tölvupóst á fraedsla@us.is og fengið merki sent til sín.
Þetta er í annað sinn á þessu ári sem Nýja Kaupþing, Umferðastofa og Lögregla hrinda af stað sérstöku átaki til að brýna fyrir börnum og fullorðnum mikilvægi endurskinsmerkja og hvernig ber að nota þau.
Nokkrar staðreyndir um endurskinsmerki:
Ökumenn sjá vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr
Endurskinsmerki þurfa að vera neðarlega og sjást frá öllum hliðum
Mikilvægt er að setja endurskinsmerki á ketti, hunda og hesta svo dýrin sjáist líka í myrkrinu
Langflestir eiga endurskinsmerki ofan í skúffu
Láttu sjá þig á Facebook