09.10.2013
Láttu sjá þig - Arion banki dreifir endurskinsmerkjum
Nú þegar hausta tekur er gott að huga að endurskinsmerkjum og þá ekki síst hjá börnum og ungmennum. Líkt og undanfarin ár stendur Arion banki fyrir dreifingu á endurskinsmerkjum og mun bankinn senda endurskinsmerki heim til allra sex ára barna á landinu sem munu berast á næstu dögum. Endurskinsmerki Arion banka verða auk þess öllum aðgengileg í útibúum bankans á meðan birgðir endast.
Rannsóknir sýna að noti vegfarendur endurskinsmerki sjá ökumenn þá fimm sinnum fyrr en ella. Það getur því borgað sig að gefa sér stutta stund til að festa endurskinsmerki í fötin. Endurskinsmerki Arion banka uppfylla nauðsynlega staðla sem gilda um endurskinsmerki.
Hægt verður að nálgast endurskinsmerki í öllum útibúum Arion banka, á meðan birgðir endast. Þeir sem búa fjarri útibúum bankans og geta ekki sótt endurskinsmerki geta sent tölvupóst á netfangið arionbanki@arionbanki.is og fengið merkin send til sín.