24.01.2011
Láttu sjá þig - endurskinsmerki í útibúum Arion banka
Ný sending er komin af endurskinsmerkjunum og er dreifing hafin. Þetta er í fimmta skipti sem bankinn fer út í slíka herferð. Allir gestir útibúanna geta nælt sér í glitrandi merki, á meðan birgðir endast.
Merkin eru gefin í samstarfi við Umferðarstofu og lögregluna. Þeir sem búa fjarri útibúum bankans, geta sent tölvupóst á fraedsla@us.is og fengið merkin send.
Endurskinsmerkin eru myndir af uglu, fiski og fugli. Bæði er hægt að fá þau sem límmiða eða í keðju. Síðast runnu merkin mjög hratt út og því betra að draga það ekki um of að kíkja í næsta útibú Arion banka og tryggja sér eintak.